Þetta er meðal þess sem fram kemur í sjöunda þætti Af vængjum fram, nýjum skemmtiþætti á Vísi í tilefni af forsetakosningum. Þar setjast forsetaframbjóðendur niður og gæða sér á sífellt sterkari kjúklingavængjum á milli þess sem þeir ræða lífið og tilveruna í einlægu spjalli. Von er á forsetaframbjóðendum í þáttinn næstu vikur.
Tekur ekki verkjatöflur en hrifinn af D-vítamíni
Arnar segist meðal annars vera hrifinn af sterkum mat. Hann segir það hafa komið sér á óvart hvað forsetaframboð er persónulegt. Það sé líka styrkjandi.
Hann segir sjálfsagt að fólk vilji vita allskonar hluti um sig. Hann hefur prófað ýmislegt, verið dómari, lögmaður og kennari svo fátt eitt sé nefnt. Arnar segir Íslendinga oft viðkvæma fyrir ágreiningi og rökræðum á meðan aðrar þjóðir hvetji til þess.
Arnar Þór segist í mörg ár hafa fengið yfir sig skít og dylgjur en segist þola það. Í þættinum rifjar Arnar upp þegar það var í fyrsta sinn ráðist á hann í opinberri umræðu.
Þá svarar Arnar spurningum um hvernig fjölskylda hans hafi tekið þátttöku hans í umræðunni. Hann ræðir líka áhuga sinn á sjósundi og segist eiga lítinn árabát sem hann noti gjarnan.
Hann segist hafa verið skíthræddur við fíkniefni og segist óviss hvort hann myndi þekkja hasslykt enn þann dag í dag. Hann er ekki á neinum lyfjum og tekur aldrei verkjatöflur en tekur þó D-vítamín. Þá svarar hann því hvað nafn hans væri á ensku.