Á sama tíma eiga um tíu þúsund einstaklingar einneign hjá Tryggingastofnun vegna þess að þau fengu of lítið greitt. Miðgildi inneigna er rúmlega 73.000 krónur og lækkaði lítillega frá árinu áður þegar það var 77 þúsund.
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Tryggingastofnun, TR. Þau sem eiga inneign fá hana greidda næsta laugardag, 1. júní. Þar kemur einnig fram að fjöldi þeirra sem fengu ofgreitt er svipaður milli ára, eða 78 prósent árið 2023 miðað við 74 prósent árið 2022.
Verðbólga og vextir ástæðan
Breytinguna í ofgreiðslu má, samkvæmt tilkynningu, fyrst og fremst rekja til verðbólgu og vaxtastigs. Það hafi haft mikil áhrif á lífeyrissjóðsgreiðslur og fjármagnstekjur. Í tilkynningu segir að misræmið sé vegna þess að greiðslur frá Tryggingastofnun byggja á tekjuáætlunum lífeyrisþega. Það er hvað þeir telja að þeir muni hafa í tekjur á komandi ári.
„Endurreikningurinn sem birtist nú byggir á tekjuupplýsingum úr staðfestum skattframtölum fyrir árið 2023. Þessi samanburður leiðir í ljós hvort lífeyrisþegi hafi fengið greitt í samræmi við réttindi sín, eða hvort frávik valdi því að um van – eða ofgreiðslu hafi verið að ræða á síðastliðnu ári. Eðlilegt er að frávik á greiðslum komi fram við endurreikning þar sem erfitt getur reynst að áætla tekjur fram í tímann,“ segir í tilkynningunni.
Bæta upplýsingaflæði
Þar kemur einnig fram að þótt svo að lífeyrisþegar beri ábyrgð á að tekjuskráning sín sé sem réttust sé starfsfólk TR stöðugt að leita leiða til þess að draga úr því misræmi sem getur orðið á milli tekjuáætlunar og rauntekna. Þannig er sífellt unnið að betra upplýsingaflæði milli TR og lífeyrissjóða sem og við skattyfirvöld. Í vor var undirritað samkomulag við lífeyrissjóði um stafræna miðlun upplýsinga varðandi umsóknir til lífeyrissjóða.
Þá hvetja þau lífeyrisþegar til að breyta tekjuáætlunum sínum inni á Mínum síðum TR ef tekjur breytast. Þá hefur TR kynnt nýtt greiðslufyrirkomulag þar sem viðkomandi fær eina greiðslu á ári. Það geti hentað þeim vel þeim sem fái tiltölulega lágar greiðslur mánaðarlega.
Á heimasíðu TR er hægt að fá nánari upplýsingar um það hvernig er hægt að haga endurgreiðslu vegna ofgreiðslu.