Skoðun

Um­hverfis­mat Coda Terminal í Straums­vík

Heiða Aðalsteinsdóttir skrifar

Carbfix fagnar því að umhverfismat Coda Terminal, sem er móttöku- og geymslustöð fyrir koldíoxíð (CO2) í Straumsvík sé komið í opið kynningarferli eftir um það bil tveggja ára undirbúning og vinnu. Coda Terminal tekur á móti CO2 sem fangað er frá iðnaði og ekki er hægt að útrýma með orkuskiptum (e. hard to abate). Dæmi um slíka iðnaðarferla eru framleiðsla áls, stáls og sements, sem flest öll mannvirkjagerð reiðir sig á, ekki síst hér á landi. CO2 sem tekið verður á móti verður dælt djúpt í jarðlög með Carbfix tækninni sem hermir eftir og flýtir náttúrulegum ferlum til að binda CO2 varanlega í berg með öruggum og sannreyndum hætti og þannig komið í veg fyrir áhrif þess á loftslagið.

Umhverfismat er veigamikið verkfæri fyrir framkvæmdaraðila og fyrir samfélagið í heild sinni til að eiga samtal um möguleg áhrif sem nýjar framkvæmdir kunna að hafa á umhverfi og samfélag. Það brýnir framkvæmdaraðila til að huga að fjölmörgum þáttum framkvæmdar sinnar þegar á undirbúningsstigi og að miðla þeim til hagaðila og almennings. Þegar vel tekst til gerir umhverfismat framkvæmdaraðila kleift að koma auga á möguleg umhverfisáhrif á fyrstu stigum verkefnisins og að skilgreina mótvægisaðgerðir og vöktun til að fyrirbyggja möguleg neikvæð áhrif á umhverfi sitt og samfélag. Þátttaka almennings og hagaðila í því samtali er ákaflega mikilvæg og hvetur Carbfix sem flest til að kynna sér Coda Terminal sem er stærsta núverandi verkefni okkar og útvíkkar tækni sem beitt hefur verið með góðum árangri í rúman áratug. Tilgangur Carbfix er að hafa raunveruleg jákvæð áhrif á loftslag með sannreyndum og öruggum aðferðum við að binda CO2 í stein með því að útvíkka tæknina á heimsvísu. Undanfarin tæp tvö ár hefur Carbfix unnið að umhverfismati Coda Terminal ásamt fjölmörgum sérfræðingum á sínu sviði til að byggja upp sem heildstæðasta mynd af framkvæmdinni og mögulegum áhrifum hennar á umhverfið. Afrakstur þessarar vinnu er nú að finna í umhverfismatsskýrslu sem er birt og auglýst í sex vikur. Á þeim tíma hvetjum við öll sem áhuga hafa að kynna sér efni skýrslunnar á Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar og á vefsíðu Carbfix.

Við bjóðum öll áhugasöm hjartanlega velkomin á opinn fund um umhverfismatið og niðurstöður þess í samkomusal Hauka, að Ásvöllum Hafnarfirði, fimmtudaginn 30. maí n.k. kl. 17.30. Við hlökkum til að eiga uppbyggilegt samtal um umhverfismat Coda Terminal, verkefni sem er til þess fallið að hafa marktæk jákvæð áhrif á loftslagið.

Höfundur leiðir skipulags- og umhverfismál hjá Carbfix.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×