Úrskurður Evrópudómstólsins bindur endi á níu ára langrar deilu staðanna tveggja, sem hófst með stofnun Supermac árið 2015 og tilraun stofnenda til að koma vörumerkinu á evrópskan markað. Forsvarsmenn McDonalds andmæltu vörumerkinu, sem þeir sögðu of líkt Big Mac-vörkumerki þeirra og nafnið kæmi til með að rugla neytendur.
Ári síðar vann McDonalds hálfgerðan sigur, þegar Supermac fékk leyfi fyrir samnefndu vörumerki en ekki fyrir vörumerki marga rétta á matseðlinum.
Ári síðar lagði írska veitingakeðjan inn málsókn fyrir hugverkastofu ESB (EUIPO) gegn McDonalds fyrir einokun á vörumerkinu Big Mac. Í umsögninni var því haldið fram að vörumerkið hefði ekki verið notað í tengslum við nafn á veitingastað í fimm ár. Supermac sakaði risann um svokallaða „vörumerkjaógn“, skráningu vörumerkja sem ekki eru notuð til að koma í veg fyrir að samkeppnisaðilar á markaði fái leyfi fyrir vörumerkinu.
Sigur fyrir minni fyrirtæki
EUIPO staðfesti málið að hluta til árið 2019, og í gær úrskurðaði Evrópudómstóllinn um að vörumerkið Big Mac yrði afskráð sem vörumerkt veitingastaðarheiti og að afturkalla rétt McDonalds til að nota vörumerkið í tengslum við rétti sem innihalda kjúkling. Niðurstaðan grundvallaðist á að sönnunargögn McDonalds gæfu enga vísbendingu um að vörumerkið væri notað sem nafn á nokkrum veitingastað né í tengslum við kjúklingaborgara.
Stofnandi Supermac, sagði úrskurðinn mikilvægan sigur fyrir lítil fyrirtæki í yfirlýsingu. „Upphaflega markmiðið með lögsókninni var að varpa ljósi á því vörumerkjaeinelti sem þessir risar beita til að hefta samkeppni.“
Í yfirlýsingu frá McDonalds vegna málsins segir að ákvörðun Evrópudómstólsins hafi ekki áhrif á rétt skyndibitarisans til að nota vörumerkið Big Mac. „Vörumerkið er gríðarlega sterkt um allan heim, þar á meðal í Evrópusambandinu, og þessi ákvörðun mun ekki á nokkurn hátt hafa áhrif á getu okkar til að nota vörumerkið eða verja gegn réttarskerðingu.“
The Guardian fjallaði ítarlega um málið.