Fjölbrautaskóli Suðurlands á Selfossi var stofnaður 1981 og er því 43 ára gamall en það var gaman að segja frá því að við brautskráningu frá skólanum nýlega var fyrsta stelpan útskrifuð, sem vélvirki, eða Vigdís Jóna Árnadóttir, sem býr á bænum Ljónsstöðum rétt við Selfoss. Hún er á vinna hjá Blikk á Selfossi og stendur sig þar vel.
„Ég er búin að vera umkringd vélum síðan ég fæddist. Þetta hefur alltaf verið áhugamál mitt. Núna er ég að sjóða saman veðurhlíf, sem fer á útvegg á sumarbústað og svo hef ég verð að setja upp loftræstikerfi og smíða hitt og þetta og klippa og beygja og ýmislegt annað”, segir Vigdís Jóna.
Og er þetta ekki bara skemmtilegt?
„Mjög, skemmtilegt og mjög gefandi. Það að geta skapað og gert eitthvað, sem maður sér afraksturinn af er það skemmtilegasta við vinnuna og það skemmir ekki hvað maður er með skemmtilega vinnufélaga,” segir Vigdís Jóna hlæjandi.
„Það er ekki oft sem maður lendir á svona ungum einstaklingi, sem er bara rosalega viljugur til að koma sér í verkið og hún er líka rosalega frumstæði í vinnu, sýnir rosalega mikið frumkvæði,” segir Ómar Þór Arnar Gunnarsson stál- og blikksmiður og vinnufélagi Vigdísar Jónu.

Hvetur þú konur og stelpur til að læra vélvirkjun?
„Já, allan daginn, mér finnst kynjahlutfallið aðeins of bjagað í þessum geira, það er bara svolítið þannig,” bætir Ómar við.

En hvað finnst vinkonum Vigdísar Jónu að hún hafi ákveðið að læra vélvirkjun?
„Þeim finnst það mjög kúl, biðja mig um hjálp við bílana sína og eitthvað þannig.”
