Zak Nelson og Elliot Griffiths komu til Íslands 19. apríl síðastliðinn. Slysið varð á fyrsta degi ferðalagsins, bíllinn sem þeir voru á gjöreyðilagðist og Elliot slasaðist alvarlega, eins og Zak lýsti í viðtali í fréttum Stöðvar 2 skömmu eftir slysið. Elliot var þá of þungt haldinn til að veita viðtal en nú, eftir þrjár vikur á Landspítalanum, sjúkraflug heim til Norwich og tveggja vikna dvöl á sjúkrahúsi þar til viðbótar, horfir allt til betri vegar.
„Þetta hefur verið ferðalag, það er langt í að ég nái bata. Ég er enn að venjast því hvað ég get og hvað ég get ekki gert,“ segir Elliot við fréttamann gegnum fjarfundarbúnað. Hann er með Zak sér við hlið á heimili þeirra í Norwich. Viðtalið við Elliot úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má horfa á í spilaranum hér fyrir neðan.
Kraftaverk að vera á lífi
Elliot segir starfsfólk Landspítalans hafa unnið kraftaverk.
„Það var stundum ógnvekjandi. Ég áttaði mig stundum á því hvað ég var nálægt því að láta lífið. Það skelfilegasta var að ég hélt að ég myndi deyja og að ég gæti ekki kvatt þig [Zak]. Að þetta væri búið. En teymið á gjörgæsludeildinni hélt mér á lífi og núna get ég setið hérna, sem er í rauninni kraftaverk. Ég hefði ekki átt að lifa af það sem við lentum í.“
Elliot, þungt haldinn og undir áhrifum sterkra lyfja þegar hann var fluttur á Landspítalann, bað Zak um að giftast sér þá og þegar, eins og fram hefur komið.
„Eitt augnablik hélt ég að hann [Zak] hefði dáið á leiðinni á spítalann. Þegar mér varð ljóst að hann væri enn á lífi, því ég heyrði röddina í honum... Þegar ég hélt að hann væri dáinn varð mér ljóst að ég gæti ekki lifað án hans. Fyrsta spurning Zaks eftir bónorðið var raunar: Ertu alveg viss?“
Veifuðu íslenska fánanum
Zak og Elliot eru miklir Eurovision-aðdáendur og fylgdust með keppninni frá sjúkrabeði þess síðarnefnda. Þeir keyptu íslenska fánann sem hangir á milli þeirra sérstaklega fyrir tilefnið.
„Við veifuðum fánanum, dönsuðum um sjúkrastofuna... Ja, þú [Zak] dansaðir um stofuna, ég dansaði í rúminu, og nutum þess að horfa á Eurovision. Þarna glitti í eðlilegt ástand.“
Viðtalið við Zak á Landspítalanum úr kvöldfréttum Stöðvar 2 þann 28. apríl má sjá hér fyrir neðan.
Brúðkaup þeirra Zaks og Elliots er svo á dagskrá um leið og Elliot hefur heilsu til.
„Áreksturinn reyndi að taka framtíðina frá okkur svo ég get ekki beðið eftir að fagna þeirri framtíð sem við höfum. Þetta verður fallegt brúðkaup.“
En munu þeir einhvern tímann snúa aftur til Íslands í fríið sem aldrei varð? Elliot var hikandi fyrst um sinn en Ísland togar í hann.
„Mér þætti yndislegt að sjá Reykjavík, ég gat ekkert skoðað mig um. Ég sá kirkjuna [Hallgrímskirkju] út um gluggann á spítalanum en náði aldrei að fara og skoða hana. Þannig að mér þætti frábært að fara aftur á spítalann og þakka fólkinu sem bjargaði lífi mínu,“ segir Elliot.
„En við munum ef til vill ekki keyra neitt,“ bætir hann kíminn við að lokum.