Skoðun

Orku­skipti í for­gang

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir skrifar

Veröldin stefnir núna hraðbyri inn í flöskuháls fjöldaútdauða tegunda ásamt yfirstandandi loftslagsbreytingum. Alþjóðlega er stefnt að því að halda hækkun á meðalhita jarðar innan við 2 gráður á Celsius, en málið er ekki svo einfalt. Mikil afneitun er í gangi og stjórnmálamenn yst á hægri væng stjórnmálanna, sem afneita vísindalegum niðurstöðum loftslagsvísinda, njóta mikils og vaxandi fylgis.

Staðreyndin er hins vegar sú að við siglum inn í loftslagsbreytingar á alltof miklum hraða. Sífrerinn í Síberíu er farinn að bráðna og losa metan út í andrúmsloftið. Metan er um 24 sinnum öflugri gróðurhúsalofttegund en koltvíoxíð. Ef sífrerinn bráðnar allur verður ekki hægt að stöðva hamfarakenndar loftslagsbreytingar.

Vísindamaðurinn James Hansen sem var yfirmaður Nasa Goddard Space Intitute, hefur skrifað bók sem heitir Stormar barnabarnanna minna. Þar lýsir hann óstöðugleikatímabili í andrúmslofti jarðar, þar sem jafnvæginu hefur verið raskað en nýtt jafnvægi er ekki enn komið á. James Hansen segir að lægðir í andrúmsloftinu eigi almennt eftir að dýpka og fellibyljir og vetrarstormar verða ofsafengnari og algengari. Skrýtin frávik eins og snjókoma í júní verða algengari.

Grænlandsjökulsísinn bráðnar hratt og ef allir jöklar jarðar bráðna á næstu 150 – 500 árum mun sjávarborð hækka um allan heim um 70 metra frá því sem nú er. Það er því tímabært að senda verkfræðinga til Hollands til þess að við Íslendingar lærum hvernig við getum varið byggðina við ströndina fyrir hækkandi sjávarborði. Þetta mun koma til með að skipta jafn miklu máli og snjóflóðavarnargarðarnir hafa gert.

Hvað er hægt að gera. Jú ég er að skrifa þessa grein einmitt til þess að gera eitthvað, en vissulega finn ég fyrir vanmætti mínum. Það er mjög mikilvægt í þessari stöðu að flýta orkuskiptum, byggja vindmyllubúgarða við Búrfell í Hekluhafi og annarsstaðar þar sem landslag þolir vindmyllur. Hins vegar á ekki að byggja vindmyllubúgarða í Norðurárdal, þar sem um upprunalegt landnámsskóglendi er að ræða og ósnortið svæði.

Rafmagnsbílar eru framtíðin hvernig sem rafmagnið verður framleitt. Það skortir ekki virkjanir. Íslendingar framleiða fimm sinnum meiri raforku en almenningur þarf. Hins vegar þarf að bæta dreifikerfið og Landsnet og verkfræðistofurnar þurfa að fá meira fjármagn til þess að geta lagað innviðina í flutningskerfinu. Það á einnig að byggja vindmyllur við þær vatnsaflsvirkjanir sem til staðar eru og nýta þannig virkjanirnar betur.

Svo er auðvitað reiðhjólið besta uppfinning allra tíma. Gott að ganga í vinnuna eða hjóla. Hvet fólk til þess að sameinast í bíla og við gætum svo auðveldlega sparað orku og geymt stærstu virkjanirnar og virkjanakostina fyrir komandi kynslóðir. Börnin okkar og barnabörn munu þurfa orku eins og við.

Höfundur er M.Sc. umhverfisefnafræðingur.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×