Þrjátíu níu ára gamall pólskur karlmaður var handtekinn fyrir að kýla Frederiksen með krepptum hnefa í öxlina á Kolatorgi í miðborg Kaupmannahafnar á föstudagskvöld. Maðurinn er sagður hafa verið vel við skál og lögregla telur ekki að árásin hafi átt sér pólitískar rætur.
Þrátt fyrir það sagði Frederiksen í sínu fyrsta viðtali eftir árásina að hún væri í engum vafa að maðurinn hefði ráðist á hana vegna þess að hann þekkti hana sem forsætisráðherra.
„Þannig er ég ekki í neinum vafa um að það var forsætisráðherrann sem árásarmaðurinn réðst á. Á þannt hátt verður þetta einnig árás á okkur öll,“ sagði Frederiksen við danska ríkisútvarpið í gær.
Forsætisráðherrann segist enn ekki búinn að jafna sig á andlegum áhrifum árásarinnar sem hafi verið ógnandi. Hún ætli sér að vinna meira á skrifstofunni á næstunni en vanalega.
„Ég er ekki alveg í toppstandi og ég er ekki alveg með sjálfri mér ennþá,“ sagði Frederiksen sem hélt sig alveg til hlés á lokametrum kosningabaráttunnar fyrir Evrópuþingskosningarnar á sunnudag.
Átökin fyrir botni Miðjarðarhafs dropinn sem fyllti mælinn
Frederiksen setur árásina í samhengi við harðandi umræðu og persónuárásum á samfélagsmiðlum. Sumir hafi jafnvel fagnað árásinni á hana þar.
Sérstaklega segir hún að tóninn hafi harnað eftir að stríð Ísraela og Hamas-samtakanna hófst á Gasa í október. Hún hafi orðið vör við hróp og ágenga hegðun fólks í almannarými á þeim mánuðum sem síðan eru liðnir.
„Þannig að kannski var það dropinn sem fyllti mælinn,“ sagði hún í viðtalinu.
Stjórnmálamenn séu nú í aukinni hættu þegar þeir komi fram opinberlega. Þeir geti ekki lengur farið ákveðna staði. Eitthvað sé að gerjast í samfélaginu þessi misserin.
„Mér er svo hrygg vegna þess að við höfum alltaf verið svo ánægð og stolt af landi þar sem forsætisráðherrann getur hjólað í vinnuna og við hittumst í búðinni,“ sagði forsætisráðherrann.
Í hvert skipti sem atvik sem þetta ætti sér stað þyrftu stjórnmálamenn aukna vernd, óttinn ykist og fjarlægðin sömuleiðis.
„Ég vil frekar eiga Danmörku þar sem forsætisráðherrann getur hjólað óttalaus í vinnuna.“