Forsetahjón Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, buðu til móttöku á Bessastöðum í gær til heiðurs Ólympíuhópi ÍSÍ 2024. Við það tilefni var tilkynnt hver myndu fá þann heiður að vera fánaberar Íslands á setningarhátíðinni 26. júlí næstkomandi.
Guðlaug Edda keppir í þríþraut og Hákon Þór keppir í haglabyssuskotfimi. Þau eru bæði að keppa í fyrsta sinn á Ólympíuleikum og fá þennan heiður samhliða frumraun sinni. Jafnframt verður þetta í fyrsta sinn sem keppandi í skotíþróttum og þríþraut er fánaberi Íslands á setningarhátíð Ólympíuleikanna.
Á síðustu leikum í Tókýó 2021 voru það sundfólkið Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Anton Sveinn McKee sem voru fánaberar Íslands en þau keppa bæði aftur í ár.

Júdómaðurinn Þormóður Árni Jónsson var með fánann á setningarhátíð ÓL í Ríó 2016 en þá var bara einn fánaberi. Spjótkastarinn Ásdís Hjálmsdóttir var fánaberi á ÓL í London 2012 og sundmaðurinn Örn Arnarson á ÓL í Peking 2008. Þá var handboltamaðurinn Guðmundur Hrafnkelsson með fánann á ÓL í Aþenu 2004 og öldin byrjaði á því á grindahlauparinn Guðrún Arnardóttir var setningarhátíð ÓL í Sydney 2000.
Allir þessir fyrrnefndu íslensku íþróttamenn voru fánaberar í hefðbundni setningarhátíð þar sem keppendur gengu saman inn á Ólympíuleikvanginn en í ár munu þau Guðlaug Edda og Hákon taka þátt í glænýrri útgáfu af setningarhátíð.
Að þessu sinni verður verður ekki hefðbundin innganga á setningarhátíð heldur sigla fulltrúar allra landa á bátum eftir ánni Signu í hjarta Parísarborgar. Setningarhátíðin er sú stærsta sem haldin hefur verið í sögu Ólympíuleikanna.
Guðlaug Edda og Hákon munu því vera með fána Íslands í siglingunni á Signu. Þar sem að þetta er alveg ný útgáfa af setningarhátíð verður að koma í ljós hvernig útfærslan verður að öðru leyti að Ísland mun væntanlega fá sinn eigin bát á Signu.
Íslands á fimm keppendur á Ólympíuleikunum í París því auk Guðlaugu Eddu og Hákons Þórs þá keppa Anton Sveinn McKee og Snæfríður Sól Jórunnardóttir í sundi og Erna Sóley Gunnarsdóttir í frjálsum íþróttum.