Í umfjöllun BBC kemur fram að þann 18. júní hafi lögreglu verið tilkynnt um hvarf þeirra Söruh Packwood og Brett Clibbery þegar ekkert hafði spurst til þeirra um hríð.
Viku áður hafi þau lagt af stað rúmlega þrjú þúsund kílómetra langa leið frá Nova Scotia héraði í Kanada á umhverfisvænni skútu. Ferðinni var heitið til Asóreyja og átti ferðin að taka um þrjár vikur.
Lík þeirra rak að landi á Sable og fundust þann 12. júlí. Parið er talið hafa yfirgefið skútuna sjálf og síðar farist. BBC hefur eftir lögreglu í Kanada að atburðarásin sé enn ókunn og málið sé í rannsókn.
Þá kemur fram að mögulega hafi flutningaskip hefði rekist á skútuna án þess að áhöfn þess tæki eftir. Parið hefði þá annað hvort ekki getað komið í veg fyrir áreksturinn eða haft skútuna á sjálfvirkri stýringu meðan þau hvíldu sig í káetunni.
Packwood og Clibbery héldu uppi samfélagsmiðlasíðum þar sem þau birtu iðulega efni frá siglingum þeirra á skútunni Theros. Þau sögðust leggja mikið upp úr því að geta sýnt öðrum að hægt sé að ferðast á umhverfisvænan hátt. Í myndbandi sem þau birtu á YouTube útskýrðu þau að þau kæmu til með að reiða sig á sólarsellur, rafhlöður og rafknúinn mótor endurunninn úr bíl í ferðinni.