Orri Steinn byrjaði á marki í Íslendingaslagnum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 22. júlí 2024 19:00 Orri Steinn fagnar marki sínu. FCK Lyngby tók á móti FC Kaupmannahöfn í 1. umferð dönsku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu. Alls voru þrír Íslendingar í byrjunarliðum liðanna og Orri Steinn Óskarsson gerði sér lítið fyrir og skoraði fyrsta mark leiksins í 2-0 sigri gestanna.
Orri Steinn hóf leikinn sem fremsti maður gestanna á meðan markvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson sat á varamannabekknum. Í liði heimamanna var Kolbeinn Birgir Finnsson í stöðu vinstri bakvarðar og Sævar Atli Magnússon einn af tveimur framherjum. Það tók Orra Stein aðeins sjö mínútur að koma gestunum yfir eftir undirbúning hægri bakvarðarins Rodrigo Huescas, sá er tvítugur og gekk í raðir FCK í sumar. Þegar hálftími var liðinn tvöfaldaði hinn norski Mohamed Elyounoussi forystuna eftir stoðsendingu hins sænska Jordan Larsson. ⚪️🔵⏱️Pause⚖️0-2⚽️⚽️Orri, Moi#fcklive pic.twitter.com/jovtB6WKjT— F.C. København (@FCKobenhavn) July 22, 2024 Orri Steinn kom boltanum í netið á nýjan leik þegar 40 mínútur voru liðnar en markið var dæmt af eftir að myndbandsdómari leiksins hafði skoðað það gaumgæfilega, staðan því enn 0-2 þegar flautað var til loka fyrri hálfleiks. Sævar Atli var tekinn af velli á 68. mínútu og Orri Steinn á 81. en ekkert var skorað í síðari hálfleik og FCK byrjar tímabilið því á góðum 2-0 sigri.
Fótbolti Danski boltinn Mest lesið Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Íslenski boltinn Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Körfubolti „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Körfubolti Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ Sport „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Körfubolti Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni Körfubolti Fleiri fréttir Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Arsenal í erfiðri stöðu eftir haítískt sigurmark Mögnuð endurkoma mikilvæg í toppbaráttunni Ísak bombaði inn úr þröngu færi Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf ný hné til þess að geta gengið eðlilega Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Albert sagður á óskalista Everton og Inter Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Sjá meira