Í tilkynningu Play í gær kom fram að vinna við árshlutareikning og uppfærslu afkomuáætlunar vegna ársins 2024 gæfi vísbendingar um að rekstrarhagnaður Play yrði ekki í kringum núll eins og áður hafði verið gefið út, heldur neikvæður. Þó stefndi í að afkoman á þennan mælikvarða yrði mun betri en í fyrra.
„Erfitt rekstrarumhverfi flugfélaga um þessar mundir gefur Play tilefni til að veita ekki frekari leiðsögn um rekstrarþætti félagsins fram á við,“ sagði í tilkynningunni.
Íslensku flugfélögin hafa átt erfitt uppdráttar undanfarna mánuði samhliða jarðhræringum á Reykjanesskaga og blikum á lofti í ferðaþjónustu. Fjöldi ferðamanna í júní dróst saman um níu prósent frá því sem var í fyrra. Flestar spár höfðu gert ráð fyrir fjölgun. Þó fjölgaði farþegum með Play bæði í maí og júní.
Icelandair sagði upp á níunda tug starfsmanna á skrifstofum félagsins í lok maí og tók um leið afkomuspá úr gildi.
Við það tilefni sagði Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, ekki tilefni til að breyta afkomuspá Play. Sjö vikum síðar er annað hljóð komið í strokkinn og afkomuspáin heyrir sögunni til.
Rekstrarafkoma Play var neikvæð um tæpa þrjá milljarða króna í fyrra og til viðbótar bættust við rúmir þrír milljarðar í fjármagnskostnað. Tapið fyrir skatt nam því 6,3 milljörðum króna. Afkomuspáin gerði ráð fyrir rekstrarafkomu í kringum núllið en nú er ljóst að reiknað er með neikvæðri afkomu.
„Við höfum vissulega tekið eftir þeim atriðum sem tiltekin eru af hálfu Icelandair. Það er engum blöðum um það að fletta að framboð alþjóðlegra flugfélaga á sætum yfir Atlantshafið hefur aukist töluvert í sumar miðað við í fyrra, sem veldur verðþrýstingi, sem við förum ekki varhluta af. Sömuleiðis könnumst við að Ísland sem áfangastaður á örlítið undir högg að sækja í samkeppninni þessi misserin. Það hjálpar ekki heldur,“ sagði Einar Örn forstjóri Play í samtali við Innherja í lok maí.
Einar Örn tók við forstjórastarfinu af Birgi Jónssyni um miðjan marsmánuð eftir að hafa áður verið stjórnarformaður félagsins.

Athygli vakti í síðustu viku þegar flugfélagið prentaði þúsund gjafabréf upp á tíu þúsund krónur og gaf á Kjarvalsstöðum. Gjafabréfin runnu út eins og heitar lummur en gildistími þeirra var ein vika eða til fimmtudags, þegar uppgjörið verður kynnt.