Bandaríkin hafa undanfarin ár átt marga af sterkustu hlaupurum heims en þeim hefur engu að síður mistekist trekk í trekk að vinna til verðlauna í 4 x 100 metra boðhlaupi á Ólympíuleikunum.
Liðið þótti sigurstranglegt í ár, jafnvel þó svo að Noah Lyles hafi þurft að draga sig úr keppni vegna covid smits. En liðið komst ekki einu sinni upp úr undanriðlinum. Skiptin hjá Christian Coleman og Kenny Bednarek voru algjörlega misheppnuð og þegar Bednarek komst loks af stað kom í ljós að skiptin voru ólögleg og liðið var dæmt úr keppni.
Ótrúleg hrakfallasaga og misheppnuð skipti trekk í trekk
Bandaríska liðið vann greinina árið 2000 en síðustu verðlaun liðsins komu í hús í 2004 þegar liðið endaði í öðru sæti eftir misheppnuð skipti sem kostuðu liðið sigurinn.
2008 missti liðið keflið og komst ekki upp úr undanriðli. 2012 náði liðið öðru sæti á eftir Jamaíku en var síðan dæmt úr leik vegna lyfjamisnotkunar Tyson Gay. 2016 var liðið dæmt úr leik í úrslitum eftir misheppnuð skipti og árið 2021 náði liðið ekki í úrslit, enn á ný eftir misheppnuð skipti.
Misheppnuð skipti eru eins og rauður þráður í þessari upptalningu. Það er engu líkara en hlaupararnir kunni einfaldlega ekki að rétta keflið á milli.
Carl Lewis, sem vann níu sinnum til gullverðlauna á Ólympíuleikunum, er ekki sáttur við þjálfun liðsins og hefur kallað eftir því að kerfið verði sprengt upp og vandar þjálfurum liðsins ekki kveðjurnar.
It is time to blow up the system. This continues to be completely unacceptable. It is clear that EVERYONE at @usatf is more concerned with relationships than winning. No athlete should step on the track and run another relay until this program is changed from top to bottom. https://t.co/Re6THj8QTm
— Carl Lewis (@Carl_Lewis) August 9, 2024
Það er þó vert að halda því til haga að þetta sama þjálfarateymi stýrði kvennaliði Bandaríkjanna til sigurs í sömu grein en kvennasveitin hefur alls unnið gullið tólf sinnum og virðist hreinlega bara vera mun betur samstillt en karlasveitin.