Marel er með starfsstöðvar í um 30 löndum í sex heimsálfum. Á vefsíðu fyrirtækisins segir að hjá fyrirtækinu starfi um 7.500 manns.
Auk starfsmanns Marel létust krabbameinslæknir, þriggja ára stúlka og fjölskylda frá Venesúela og hundurinn þeirra. Flugvélin var á leið frá Cascavel til flugvallarins í Sau Paulo þegar hún hrapaði skyndilega. Fimmtíu og sjö farþegar voru um borð og fjórir starfsmenn. Á myndbandi má sjá þegar vélin hringsnerist á hraðri leið til jarðar. Allir sem voru um borð í flugvélinni létu lífið.
Mildi þykir að enginn hafi slasast sem var á jörðinni, en vélin brotlenti í íbúðabyggð þar sem aðeins eitt hús varð fyrir skemmdum.
Rannsakendur hafa endurheimt svarta kassa flugvélarinnar þar sem má finna upptökur frá flugmönnum og annað efni. Í frétt AP um málið sem birt var um helgina kom fram að fyrstu niðurstöður rannsakenda yrðu birtar innan 30 daga frá slysinu. Vélin brotlenti um klukkan 13.30 að staðartíma og hafði um níu mínútum áður misst samband við stjórnstöð og sást ekki á ratsjá um átta mínútum áður en hún hrapaði.
Franskir rannsakendur komu til Brasilíu um helgina til að rannsaka tildrög slyssins. Fjölskyldur hinna látnu komu saman í Sao Paulo í gær en enn er unnið að því að bera kennsl á alla sem létust í slysinu. Nánar á vef AP.
Starfsmaður Marel í vél Singapore Airlines
Ekki er langt síðan greint var frá því að annar starfsmaður Marel var flugvél Singapore Airlines sem lenti í mikilli ókyrrð á leið sinni frá London til Singapúr. Maðurinn, Aron Matthíasson, var í vinnuferð á vegum fyrirtækisins þegar atvikið átti sér stað. Aron, sem var í sæti við gang flugvélarinnar, skall með höfuðið upp í farangursrýmið fyrir ofan sig, rotaðist, og féll á gólfið.