Ekkert þarf að greiða fyrir kvöldstundina en hana þarf að bóka með fyrirvara í gegnum tölvupóstinn elira@elira.is eða í gegnum síma 419-3550. Farið er létt yfir hvað gerir vöruúrvalið í versluninni svona einstakt.
„Við förum yfir umhirðu húðar og veitum ráðgjöf hvernig best er að hugsa um húðina ásamt því að gefa góð ráð þegar að kemur að fallegri og náttúrulegri förðun.
Kvöldinu er stýrt af snyrtifræðingi í fallegu umhverfi verslunarinnar. Í leiðinni getur hver og ein fengið persónulega ráðgjöf um val á vörum," segir Rakel Ósk.

Boðið er upp á drykki á meðan kvöldinu stendur og afslætti af vörum. Vinkonukvöldin hefjast kl. 18 og standa yfir í um klukkutíma og er því frábært að nýta þau sem gott upphaf af góðu kvöldi saman.
Fagleg ráðgjöf og góð þjónusta mikilvæg
Verslunin og snyrtistofan hefur flutt sig um set úr Smáralind í nýtt og betra húsnæði að Hallgerðargötu.
„Okkur langaði að bæta við okkur nútímalegri og flottri snyrtistofu þar sem við gætum látið þessi einstöku vörumerki skína skærara en verslunin selur vörur frá Augustinus Bader, Dr. Barbara Sturm sem eru ein af vinsælustu húðvörumerkjum í heiminum í dag. Einnig býður verslunin einstaka úrval af förðunarvörum eins og RMS Beauty, Nimya og Sweed Beauty svo eitthvað sé nefnt."

Snyrtivöruverslunin leggur áherslu á ráðgjöf og góða þjónustu
„Úrvalið af húð- og snyrtivörum er mikið í dag og aðgengi að allskonar upplýsingum er ótæmandi. Því er mikilvægt að geta fengið faglega ráðgjöf um innihald og rétta notkun húð- og förðunarvara. Hér í Eliru vinna eingöngu lærðir snyrtifræðingar og förðunarfræðingar og við bjóðum einungis upp á hágæða snyrtivörur og förðunarvörur ásamt persónulegri þjónustu,“ segir Rakel Ósk .