Skoðun

Glæpur án tjóns?

Breki Karlsson, Ólafur Stephensen og Ragnar Þór Ingólfsson skrifa

Innherji á Vísi birti í gær langa endursögn á skýrslu, sem tveir hagfræðingar unnu fyrir Eimskip, ásamt ummælum Vilhelms Más Þorsteinssonar, forstjóra skipafélagsins. Hagfræðingarnir, þeir Birgir Þór Runólfsson og Ragnar Árnason, voru fengnir til að rýna mat ráðgjafarfyrirtækisins Analytica á tjóni af völdum samráðsbrota Eimskips og Samskipa. Sú matsgerð var unnin fyrir Félag atvinnurekenda, Neytendasamtökin og VR, og var niðurstaða hennar sú að tjón fyrirtækja og neytenda af samráðinu hefði verið um 62 milljarðar króna.

Hagfræðingarnir setja fram margvíslega gagnrýni á aðferðafræði Analytica og segja að hún „hæfi ekki til að meta tjón af meintu samráði Eimskips og Samskipa,“ eins og það er orðað í frétt Innherja. Forstjóri Eimskips segir þetta „mjög alvarlegt“.

Það kemur greinarhöfundum ekki eitt augnablik á óvart að úr þessari átt komi gagnrýni á matsgerð Analytica og tilraun til að gera hana ótrúverðuga. Við öðru var ekki að búast. Í matsgerðinni kom skýrt fram á sínum tíma að hún væri ekki nákvæmnisvísindi að því leytinu að við matið þurfti fyrirtækið að gefa sér ýmsar forsendur. Hún var hins vegar nálgun að útreikningi á því tjóni, sem Eimskip og Samskip ollu íslensku samfélagi með ólögmætu samráði.

Stóru spurningunni ekki svarað

Stóra spurningin, sem er ekki svarað í skýrslu Birgis og Ragnars, a.m.k. miðað við endursögn Innherja, er hins vegar: Hvert er þá tjónið, reiknað með „réttri“ aðferðafræði? Bað Eimskip hagfræðingana ekki að finna út úr því? Og datt blaðamanni Innherja ekki í hug að spyrja forstjóra Eimskips að því? Án slíkrar umfjöllunar verður gagnrýni á mat Analytica marklaus.

Það er nefnilega allsendis ótrúverðugt, reyni Eimskip að halda því fram að tjónið sé ekki neitt. Fyrirtækið gerði sátt við Samkeppniseftirlitið, þar sem það játaði alvarleg brot á samkeppnislögum og greiddi eina hæstu sekt, sem lögð hefur verið á fyrirtæki vegna samkeppnisbrota. Bæði forsvarsmenn Eimskips og hinir virðulegu hagfræðingar sem unnu fyrir þá vita mætavel að samráð af því tagi sem lýst var í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins í máli Samskipa er ævinlega til tjóns, bæði fyrir atvinnulíf og neytendur. Ætlast forsvarsmenn Eimskips til að við trúum því að lögbrotin sem þeir viðurkenndu hafi verið glæpur án fórnarlambs, sem olli ekki nokkru tjóni?

Breki er formaður Neytendasamtakanna. Ólafur er framkvæmdastjóri FA. Ragnar Þór er formaður VR.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×