Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.
Reiknuð húsaleiga hækkaði um 0,9 prósent og rafmagn og hiti um 3,3 prósent. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 7,1 prósent og háskólar um 21,1 prósent.
„Lækkun í háskólum stafar af niðurfellingu skólagjalda í nokkrum þeirra. Breytingar á kostnaði við nám í háskóla og framhaldsskóla koma fram í tölum ágústsmánaðar en breytingar í grunnskólunum (þar með talið kostnaður við skólamáltíðir) munu koma fram í september.
Verð á matvörum lækkaði um 0,5% (-0,07%) en það er í fyrsta skiptið í þrjú ár sem sá liður lækkar,“ segir í tilkynningunni.
Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 6,0 prósent síðustu tólf mánuði og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 3,6 prósent.
