Friðbert Friðbertsson, forstjóri Heklu, segir í samtali við Vísi að bílarnir hafi fundist í götum í grennd við Heklu, meðal annars í Borgartúni. Um var að ræða bíla ýmist í eigu umboðsins eða viðskiptavina.
Friðbert segir að ekki hafi verið miklar skemmdir á bílunum en þess sjötta er enn leitað. Um var að ræða tvo Volkswagen-bíla, þrjá Skoda-bíla og einn Audi.
Ásmundur Rúnar Gylfason aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við fréttastofu að málið sé í rannsókn hjá embættinu. Búið sé að finna fimm bíla af sex.
Í tilkynningu frá Heklu, sem send var á fjölmiðla í gær, sagði að eigendum bílanna hafi verið tilkynnt um þjófnaðinn sem hafi náðst í öryggismyndavélum.