Greint er frá gjaldþrotinu í Lögbirtingablaðinu. Þar kemur fram að félagið, stofnað árið 2008, hafi verið í 78 prósent eigu Landsbankans og 22 prósent í eigu félags Gunnlaugs Jónssonar. Í svari Rúnars Pálmasonar upplýsingafulltrúa Landsbankans við fyrirspurn fréttastofu kemur fram að félagið hafi á sínum tíma fjárfest í orkuiðnaði og náttúruauðlindum.
„Bankinn eignaðist meirihluta í félaginu árið 2013 og að fullu árið 2015 í tengslum við skuldauppgjör eiganda félagsins. Í skuldauppgjörinu var miðað við virði trygginga og var félagið metið verðlaust í bókum bankans,“ segir í svarinu. Það hafi því engin áhrif á bankann.
Í frétt Viðskiptablaðsins frá árinu 2010 kemur fram að félagið ætli að marka sér sess á sviði orkuiðnaðar og náttúrulegra auðlinda, „fyrst og fremst olíu til að byrja með“. Haft er eftir Gunnlaugi Jónssyni að félagið hafi í upphafi ítök í olíugeiranum víðs vegar um heiminn og bindi miklar vonir við olíuvinnslu í íslenskri lögsögu.
Fjárfesti félagið í olíuleitar– og vinnslufélögum sem staðsett voru í Noregi og Kanada, að því er fram kemur í umfjöllun DV.
Bankinn hafi rekið félagið áfram í rúman áratug og freistað þess að snúa rekstri þess við en allt hafi komið fyrir ekki. Samtímis gjaldþroti Linda resources var áðurnefnt eignarhaldsfélag Gunnlaugs, Flói ehf, úrskurðað gjaldþrota.