Helen segir að prufuferlið fyrir herferðir sé gjarnan frekar hefðbundið en hún er með umboðsmann sem sér um að bóka prufur fyrir hana.
„Umboðsmaðurinn minn (e. agent) stillti upp þessari prufu fyrir Juicy Couture. Ásamt því að mæta með hreint hár og náttúrulega förðun var reyndar sérstaklega óskað eftir sterkum persónuleika, meira að segja skrifað í hástöfum fylgdum með fjórum upphrópunarmerkjum, sem er svona heldur óeðlilegt en vissulega í takt við brandið.“

Juicy Couture sérhæfir sig í svolítið goðsagnakenndum kósý göllum og varð sérstaklega vinsælt í kringum aldamótin. Stórstjörnur á borð við Paris Hilton og Britney Spears sáust oftar en ekki skarta slíkum göllum úr velúr efni í alls kyns litum.

Aðspurð hvort hún sé almennt aðdáandi Juicy Couture segir Helen:
„Sko svona já og nei, þetta er að sjálfsögðu „iconic“ merki og ég man eftir því að hafa verið mjög lítil og þráð ekkert heitar en að fá gallann með juicy á rassinum, sem ég virðist svo hafa fengið í gegn. En ég veit samt ekki hvort þetta sé endilega lúkk sem ég er að vinna með í dag.“

Helen er búsett í Hackney í Austur London.
„Það er lang skemmtilegasta hverfið í london að mínu mati. Daglegt líf er svo alls konar. Ég reyni að fara í ræktina flesta morgna og svo annað hvort er ég að fara í prufur (e. castings) á daginn eða verkefni í London eða annars staðar í Evrópu svo það er svo sem ekki mikil rútína.
Svo er ég líka að vinna hjá framleiðslufyrirtæki hérna í London svo ef ég er í „módelfríi“ þá er ég á skrifstofunni.“

Fyrirsætustarfið felur í sér ýmsar prufur og ferðast Helen mikið sökum starfs síns.
„Flest verkefni eru bókuð eftir að maður hittir kúnnann í castingi, það er frekar óalgengt að þú sért bókaður án þess allavega svona fyrst um sinn. Svo er ótrúlega næs þegar maður er farinn að vinna með sama fólkinu aftur og aftur í svona stórborg, þá er kominn aðeins meiri heimafílingur.“

Það er ýmislegt spennandi á döfinni hjá Helen.
„Það er alltaf nóg að gera. Ég er á leiðinni til Svíþjóðar núna í nokkra daga, svo til Manchester og svo aftur til London. Svo vill móður-agentinn minn að ég fari svo að skoða Ameríkumarkaðinn bráðlega, New York eða Los Angeles,“ segir Helen að lokum.