Skoðun

Gætum við verið betri hvert við annað?

Jakob Frímann Magnússon skrifar

Fyrir 30 árum, 1994, kom fyrsti snjallsíminn á markað. Áratugi síðar, 2004 hóf svo Facebook innreið sína og 2007 fengum við í hendur það fjölnota tæki sem snjallsíminn iPhone er. Allt eru þetta stórkostlegar uppfinningar – rétt eins og gufuvélin, skriðdrekinn og atómsprengjan. Ekki ber okkur að amast við nýsköpun og tækniframförum, en í þeim efnum veldur sannarlega hver á heldur. Gervigreinda snjallmennið hefur haslað sér völl til frambúðar.

Snjallmennska eða hrakmennska?

Firringin, illskan og örvæntingin í samfélagi okkar virðist hafa stigmagnast að undanförnu. Öll erum við agndofa yfir hörkunni og ofbeldinu hryllilega sem æ tíðari fregnir berast af í okkar fámenna og friðsæla samfélagi.Börnunum okkar er brugðið, þau eru óöruggari og kvíðafyllri en nokkru sinni í umhverfi stafræns tilfinningadoða.

Eðlilega er spurt: Hvað kann hér að valda?

Við bendum hvatvíslega í ólíkar áttir, sem í fljótu bragði kunna að virðast uppsprettur hins illa. Vert er þá að muna að þegar vísifingri er bent í tiltekna átt, snúa þrír fingur fingur jafnan að okkur sjálfum.

Skyldum við rísa með sæmd undir þeirri ábyrgð, hvert og eitt, að stýra okkar eigin fjölmiðli, hvort sem sá heitir Facebook, Instagram, X, Tik Tok eða Snapchat? Misnotum við það áróðursvald?

Hrósyrði í hrakyrða stað

Vert væri að ígrunda betur það hugarþel og þau orð sem við beinum jafnan og allt of oft í kæruleysi hvert að öðru í „beinni útsendingu“ þessara miðla, dag hvern.

Sameiginlegt verkefni okkar allra hlýtur að vera að bæta og fínstilla það samfélag og þann heim sem við búum í.

Skyldi okkur farnast betur í þeim efnum ef við einsettum okkur að feta oftar stigu kærleikans og beina frekar uppbyggilegum hrósyrðum hvert að öðru í stað hrakyrða?

Innleiðum nýjan samfélagssáttmála

Kynni sú vaxandi illska sem nú skekur samfélagið með ofbeldi, rányrkju og morðum hreinlega að spegla hugarþel okkar sjálfra, eitthvað sem við sjálf höfum í hugsunarleysi leyft okkur að beina hvert að öðru úr því „launsátri“ sem okkar eigin persónulegu samfélagsmiðlar hafa gert okkur mögulegt?

Færi e.t.v. betur á því að láta þau orð ein falla um náunga sinn – hver sem sá kynni að vera - sem maður mundi sjálfur treysta sér til að segja við þann hinn sama, augliti til auglitis?

Við, hin eldri sáum fræjunum. Fóðrið sem af sprettur nærir hina yngri.

Kynni illskan og ofbeldið sem við okkur blasir nú vera bein afleiðing hinna eitruðu fræja?

Vel færi á því að rifja oftar upp orð Reykjavíkurskáldsins Tómasar Guðmundssonar um að við hefðum vissulega „getað verið betri hvort við annað“.

Við þurfum að sammælast um nýjan samfélagssáttmála sem hverfist einmitt um þetta lykilatriði, í orði sem á borði:

Að vera betri hvort við annað.

Þá mun okkur vel farnast.

Höfundur er þingmaður Flokks fólksins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×