Fjallað verður um hnattrænar áskoranir, m.a. stríðið í Úkraínu, áhrif aðildar Svíþjóðar og Finnlands að Atlantshafsbandalaginu og varnar- og öryggissamstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á viðburðinum Hnattrænar áskoranir frá sjónarhóli Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
Viðburðurinn er á vegum Varðbergs samtaka um vestræna samvinnu og öryggismál og Háskólans í Reykjavík. Viðburðinum verður streymt á netinu og einnig birtur síðar textaður á YouTube og samfélagsmiðlum.
Þátttakendur:
- Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis;
- Aron Emilsson, formaður utanríkismálanefndar sænska þingsins;
- Irma Kalniņa, varaformaður utanríkismálanefndar lettneska þingsins;
- Ine Eriksen Søreide, formaður utanríkis- og varnarmálanefndar norska þingsins;
- Kimmo Kiljunen, formaður utanríkismálanefndar finnska þingsins;
- Marko Mihkelson, formaður utanríkismálanefndar eistneska þingsins;
- Michael Aastrup Jensen, formaður utanríkismálanefndar danska þingsins;
- Emanuelis Zingeris, formaður utanríkismálanefndar litháíska þingsins.
Opnunarorð: Davíð Stefánsson formaður Varðbergs.
Stjórn pallborðsumræðu: Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar Alþingis.
Viðburðurinn fer fram á ensku og er opinn öllum þeim er skrá þátttöku.