Í skýrslunni er til að mynda bent á að einungis tvö prósent starfsfólks Isavia á flugvellinum sem býr á höfuðborgarsvæðinu nýti sér almenningssamgöngur eða starfsmannarútu til og frá vinnu að staðaldri. Hjá starfsfólki sem býr í Reykjanesbæ sé hlutfallið einungis um eitt prósent.
Þá er bent á að einu almenningssamgöngurnar milli Keflavíkurflugvallar og Reykjanesbæjar haldist ekki í hendur við flugáætlanir, opnunartíma flugstöðvar eða vinnutíma starfsfólks.
„Ferðatími, tíðni og kostnaður almenningssamgangna í samanburði við einkabílinn segir mikið til um samkeppnishæfni ferðamátans. Með áframhaldandi aukningu umferðar við Keflavíkurflugvöll og á höfuðborgarsvæðinu lengist óhjákvæmilega ferðatími með almenningssamgöngum nema þær séu í forgangi. Horfa þarf til lausna sem lágmarka og stytta ferðatíma með almenningssamgöngum til og frá Keflavíkurflugvelli,” segir í skýrslunni.
Starfshópurinn leggur til að almenningssamgöngur verði því gerðar að samkeppnishæfum ferðamáta. Það er ein af sex aðgerðum sem hópurinn leggur sérstaklega til, sem framtíðarsýn til ársins 2030.
- Markmið 1: Efla almenningssamgöngur svo að þær þjóni betur íbúum, starfsfólki og ferðamönnum
- Markmið 2: Afla betri gagna um ferðavenjur starfsfólks og flugfarþega
- Markmið 3: Fyrirmyndar aðstaða fyrir farþega
- Markmið 4: Almenningssamgöngur séu samkeppnishæfar við aðra ferðamáta
- Markmið 5: Almenningssamgöngur séu grænar
- Markmið 6: Samstarf hagsmunaaðila um áframhaldandi uppbyggingu og þróun almenningssamgangna
Þá leggur hópurinn einnig til aðra framtíðarsýn, til ársins 2040. Tillögurnar þar eru eftirfarandi:
- Vagnar gangi fyrir grænni orku.
- Innviðir við Keflavíkurflugvöll og á höfuðborgarsvæðinu styðji grænar almenningssamgöngur.
- Ferðir verði tíðar, greiðfærar og áreiðanlegar – án tafa og krókaleiða.
- Auðvelt verði að ferðast með farangur, vagna, hjólastóla og reiðhjól. Almenningssamgöngur verði öruggur kostur og aðgengi tryggt fyrir alla .
- Greiðslukerfi sé notendavænt.
- Aðstaða fyrir farþega verði til fyrirmyndar.
- Góðar tengingar við aðrar almenningssamgöngur
Í skýrslunni er í mjög stuttu máli minnst á hraðvagna og lest. Það er þegar fjallað er um orðskýringuna á almenningssamgöngum, en þar segir að mögulegar framtíðarlausnir, líkt og hraðvagnar eða lest, falli undir þá skilgreiningu.