Full ástæða er til að hafa áhyggjur af raforkuöryggi almennings og nauðsynlegt er að auka virkni heildsölumarkaðar. Hvorugt verður þó tryggt með því að heimila stórnotendum að endurselja raforku inn á kerfið, orku sem þeir ella myndu nota í eigin rekstur.
Raforkukerfið okkar er í þröngri stöðu og eðlilegt að allar leiðir til úrbóta séu ræddar. Almenni markaðurinn, þ.e. heimili og fyrirtæki önnur en stórnotendur, notar um 20% af allri raforku sem unnin er, en stórnotendur um 80%. Við fyrstu sýn kann endursala stórnotenda inn á kerfið því að hljóma sem einfalt mál og hugsanleg töfralausn í þröngri stöðu.
Hafa verður í huga að raforkukerfið okkar er einstakt á heimsvísu. Það er eingöngu knúið af endurnýjanlegum orkugjöfum og gengið þannig frá samningum við stórnotendur raforku að ekki er þörf á að vera með plan B í formi jarðefnaeldsneytis, líkt og í öðrum löndum. Ætla mætti að slíkt kerfi væri ekki hægt að reka svo vel færi. Staðreyndirnar tala hins vegar sínu máli: nýting auðlinda og fjárfestingar í orkuframleiðslu eru með því allra besta sem þekkist í heiminum. Iðnaður hefur verið samkeppnishæfur og raforkuverð til almennings lágt og stöðugt. Þá hefur raforkuöryggi til þessa verið tryggt.
Skerðingar og sveigjanleiki
Raforkusölusamningar við stórnotendur eru öðruvísi á Íslandi en í öðrum löndum og eru grundvöllur vel heppnaðrar uppbyggingar raforkukerfisins. Til þess að hámarka nýtingu auðlindarinnar, en á sama tíma tryggja öruggan rekstur kerfisins, höfum við samið sérstaklega um að geta skert afhendingu orku til stórnotenda í slæmum vatnsárum. En það er ekki bara Landsvirkjun sem hefur sveigjanleika í orkuafhendingu þegar svo ber undir, heldur hafa viðskiptavinir einnig sveigjanleika í raforkunotkun. Þegar eitthvað kemur upp í rekstri þeirra eru þeir ekki skuldbundnir til að taka alla raforku sem samningar kveða á um. Raforkuverð í samningum tekur auðvitað mið af öllum þessum þáttum, er lægra fyrir vikið og endurspeglar þessar mismunandi forsendur afhendingar.
Í raforkusamningum á meginlandi Evrópu er það yfirleitt reglan að stórnotendur geta endurselt raforkuna á markað, en í þeim felast líka skuldbindingar um að kaupa alla umsamda orku. Ef endursala stórnotenda inn á kerfið hér á landi yrði að veruleika þyrfti að taka upp alla raforkusamninga og breyta þeim í veigamiklum atriðum. Ein óhjákvæmileg afleiðing þess væri hærra raforkuverð sem kæmi niður á samkeppnishæfni þeirra fyrirtækja sem hér starfa. Stoðunum yrði kippt undan farsælum rekstri í kerfi með eingöngu endurnýjanlega orku og hámarksnýtingu, sem hefur verið til hagsbóta fyrir bæði iðnað og almenning í landinu.
Jafnvægi ógnað
Viðsemjendur Landsvirkjunar eru öflug fyrirtæki sem starfa um allan heim og keppa á alþjóðlegum mörkuðum. Hart er tekist á um viðskiptaskilmála og þar skiptir raforkuverðið mestu máli. Við samningaborðið er ekki verið að takast á um heimildir viðskiptavina til endursölu, enda kjósa þeir að nota raforkuna í eigin starfsemi.
Raforkumarkaðurinn á Íslandi er örmarkaður þar sem stórnotendur eru fyrirferðarmiklir og endursala án takmarkana gæti raskað jafnvæginu með ófyrirséðum afleiðingum, þar sem álverð á heimsmarkaði yrði jafnvel ráðandi þáttur í raforkuverði til almennings hérlendis.
Þá vill oft gleymast, að flutningskerfi Landsnets takmarkar hversu mikla raforku er hægt að flytja milli landsvæða. Um helmingur af raforkunotkun stórnotenda er á norður- og austurlandi og ekki hægt að flytja raforkuna suður, þar sem staðan er þröng. Í raun gætu því aðeins fáein fyrirtæki hugsanlega endurselt raforku inn á kerfið.
Tífalt verð
Í vor stóð miðlunarforðinn í Þórisvatni mjög tæpt. Landsvirkjun biðlaði þá til viðskiptavina sinna að hafa samband ef áhugi væri á endursölu, með það að markmiði að verja lónstöðuna. Viðbrögðin voru mjög takmörkuð og í þeim tilvikum sem raforkuverð kom til umræðu var það allt að tíu sinnum hærra en kaupverð í samningum. Það er skiljanlegt að fyrirtækin vilji hátt verð við hugsanlega endursölu, enda myndi hún auðvitað draga úr framleiðslu þeirra og valda tekjuskerðingu sem vega þarf upp á móti.
Endursala stórnotenda er því ekki sú töfralausn sem margir halda fram þegar kemur að því að tryggja raforkuöryggi almennings.
Höfundur er framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun.