Tæplega þriðjungur af þeim fjármunum sem Trump fær frá bakhjörlum hefur komið fram fólki sem gaf honum minna en tvö hundruð dali. Í kosningabaráttunni 2020 var þetta hlutfall tæplega helmingur.
Þá hefur heildarupphæðin af þessum smáu fjárveitingum einnig lækkað töluvert, samkvæmt greiningu AP fréttaveitunnar. Fram að lokum júnímánaðar hafði hann safnað 98 milljónum dala með slíkum fjárveitingum en á sama tímabili 2020 var þessi sama upphæð 165 milljónir.
Demókratar hafa á sama tíma safnað fúlgum fjár. Fyrstu gerði Joe Biden það og Kamala Harris tók síðan við sjóðum hans. Þau söfnuðu 285 milljónum dala frá stuðningsmönnum sem veittu þeim undir tvö hundruð dali. Það samsvarar rúmlega fjörutíu prósentum af heildarupphæðinni sem þau hafa safnað.
Þessi þróun hefur leitt til þess að Trump hefur þurft að leita meira á náðir auðmanna og aðgerðahópa sem þeir styðja.
Demókratar eru þegar byrjaðir að nýta sér það í auglýsingu sem birt hefur verið í Arizona og Norður-Karólínu. New York Times segir að þar hafi aðgerðahópur á vegum Harris keypt auglýsingar fyrir um 18 milljónir dala, en hún byggir að mestu á myndbandi af Trump segja auðjöfrum á fjáröflun að hann viti að þeir séu moldríkir og lofa þeim lægri sköttum.
Segja fjáröflun of aðgangsharða
Innanbúðarmenn í Repúblikanaflokknum segja þessa þróun tákna möguleg vandræði fyrir flokkinn á komandi árum. Kannanir sýna að grasrót Repúblikanaflokksins verðu sífellt eldri og eldra fólk hefur iðulega minna milli handanna til að gefa til kosningabaráttu.
Þá segja þeir einnig í samtali við AP að fjáröflun Trumps og bandamanna hans sé of aðgangshörð og það hafi þreytt stuðningsmenn flokksins.
Mismunandi aðgerðahópar og aðrir sem styðja Trump deila listum yfir stuðningsmenn sín á milli og því rignir yfir þá beiðnum um fjárstyrki úr mörgum áttum.
Einn viðmælandi AP sem hefur veitt Repúblikanaflokknum ráðgjöf vegna fjáröflunar, segir að mismunandi fylkingar innan flokksins hafi komið svo illa við stuðningsmenn hans að margir vilji ekki lengur styrkja hann.
„Ef þú styrkir svo gott sem hvaða frambjóðanda Repúblikanaflokksins sem er í dag, færðu innan þriggja vikna um þrjátíu til fimmtíu skilaboð á öðrum frambjóðendum sem þú hefur aldrei heyrt af.“
Í könnun sem fyrirtæki Halls gerði fyrr á árinu sögðust 72 prósent af svarendum sem höfðu gefið pening til Repúblikanaflokksins að þeir hefðu áfram fengið skilaboð þar sem þeir voru beðnir um meiri peninga, þrátt fyrir að hafa beðið um að vera tekin af öllum listum flokksins.
Fólk sem blaðamenn fréttaveitunnar ræddu við staðfestu þetta sjónarhorn að miklu leyti.
Einn viðmælandi sagðist brjálaður á þessum endurteknu beiðnum um peninga. Hún hafði gefið margar smáar greiðslur í fyrra og 2022 en ekkert á þessu ári.
Það sama átti við annan sem hafði einnig ekkert gefið á þessu ári. Hann sagðist hættur að skoða skilaboðin sín vegna beiðna frá Repúblikönum.
Í svari við fyrirspurn frá fréttaveitunni kenndi talskona Trumps Joe Biden og Kamölu Harris um. Karoline Leavitt sagði efnahag Bandaríkjanna í svo slæmu standi að fólk hefði ekki efni á að styðja stjórnmálaflokka.