Skoðun

Kalt er það, Einar!

Arnór Heiðar Benónýsson skrifar

Á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga, sem fram fór síðustu helgi, sagði borgarstjóri Reykjavíkur meðal annars að;

„að kennararnir séu að biðja um að fá að vera minna með börnum, en eru samt veikari en nokkru sinni fyrr, kenna minna og einhvern veginn fleiri undirbúningstímar“.

Sem starfandi kennari í Reykjavík finn ég mig knúinn til að tjá mikla óánægju með þessi ummæli, sem endurspegla ekki einungis vanvirðingu í garð kennarastéttarinnar heldur taka ekki með í reikninginn það mikla álag og þær erfiðu starfsaðstæður sem kennarar standa frammi fyrir á hverjum degi .

Á síðustu árum hafa bekkjarstærðir stækkað til muna, nemendahóparnir eru fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr og stuðningur í bekkjum er oft ekki nægilegur. Kennarar eru að takast á við nemendur með mjög ólíkar þarfir, hvort sem það snýr að námsörðugleikum, hegðunarvanda eða félagslegum aðstæðum, án þess að fá viðeigandi aðstoð til að sinna þessu hlutverki. Þetta eykur álagið á kennara gríðarlega og tekur sinn toll af bæði andlegri og líkamlegri heilsu.

Það er óásættanlegt að borgarstjóri líti framhjá mikilvægi þessa þátta þegar hann tjáir sig opinberlega. Í stað þess að gagnrýna kennara fyrir veikindi og aukinn undirbúning ætti að beina athyglinni að því að bæta starfsumhverfi þeirra. Fyrrnefndur skortur á stuðningsúrræðum, aukin ábyrgð í starfi og gamlar og illa farnar skólabyggingar, svo einhverjir þættir séu nefndir, skapa álag sem hefur óhjákvæmilega áhrif á heilsu og starfsgetu kennara.

Það er nauðsynleg að kennarar fái þann stuðning sem þeir þurfa til að sinna starfinu með viðunandi hætti. Því þeir vilja sinna því af heilindum, en án nægilegs stuðnings og heilbrigðra vinnuaðstæðna verður það sífellt erfiðara. Það er æðsta yfirmanni reykvískra kennara ekki við hæfi að skella ábyrgðinni á kennarana sjálfa, þegar álagið í starfinu er orðið svo mikið að það hefur bein áhrif á líkamlega og andlega heilsu þeirra.

Það er löngu tímabært að yfirvöld axli ábyrgð og bæti aðstæður í skólum landsins, bæði hvað varðar gæði bygginga og þann stuðning sem kennarar þurfa til að mæta kröfum starfsins. Samfélagið þarf menntakerfi þar sem nemendur fá þann stuðning sem þeir eiga skilið, en það krefst þess að kennarar fái þann stuðning sem þeir þurfa til að sinna sínu mikilvæga starfi.

Með þingkosningar á næsta leyti þá kalla ég eftir kjarki frá þeim sem sækjast eftir að leiða landið okkar. Kjarki til að tjá sig með afgerandi hætti um stöðu menntamála í landinu og til að taka afstöðu með börnunum okkar, sem þurfa svo sannarlega á kennurunum sínum að halda.

Höfundur starfar sem grunnskólakennari í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×