Kristján tekur við embættinu af Höllu Hrund Logadóttur, sem farin er í tímabundið leyfi að eigin ósk, vegna framboðs til Alþingis. Hún mun leiða lista Framsóknar í Suðurkjördæmi.
Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að ný Umhverfis- og orkustofnun taki til starfa 1. janúar á næsta ári. Gestur Pétursson hefur verið skipaður forstjóri hennar.
Þá kemur einnig fram að Kristján hafi verið staðgengill forstjóra Orkustofnunar frá því sumarið 2024, en hann hóf störf hjá Orkustofnun árið 2014 og hefur gegnt stöðu sviðsstjóra Sjálfbærrar auðlindanýtingar frá 2023. Kristján hefur starfað við stjórnsýslu umhverfis-, orku- og auðlindamála frá árinu 1995.
Kristján er með doktorsgráðu í jarðfræði með áherslu á bergfræði og steindafræði frá Université Pierre et Marie Curie 1993 og meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu (MPA) með áherslu á umhverfis- og auðlindarétt frá Háskóla Íslands 2016.