Myndefnið sem sýnt er í fréttinni var tekið í ónefndri íslenskri sveit í september á síðasta blóðtökutímabili. Þýsk og svissnesk dýraverndunarsamtök hafa undir höndum gríðarlegt magn af sambærilegu myndefni sem tekið var upp á sex mismunandi sveitarbæjum í haust. Þau hafa einvörðungu yfirfarið um helming myndefnisins. Samtökin vöktu mikla athygli árið 2021 fyrir heimildarmynd um blóðmerarhald á Íslandi.
Matvælastofnun nefnir sérstaklega velferð hryssnanna við rekstur í rétt og nærgætni í umgengni í skilyrðum sem stofnunin setur fyrir blóðtöku úr fylfullum hryssum.
Í ágúst urðu umrædd dýraverndunarsamtök fyrir miklum vonbrigðum þegar MAST ákvað að falla frá rannsókn á meintu dýraníði vegna skorts á sönnunargögnum í máli þar sem í forgrunni var myndefni úr heimildarmynd samtakanna. Dýraverndunarsamtökunum þótti augljóst að maður hefði sparkað í andlit hryssu sem föst var við blóðtökubás umrætt sinn.
Verði að stöðva „þarflausan þjáningahring“
Það sem sést á hinu nýja myndefni kemur dýravininum og hestakonunni Rósu Líf Darradóttur ekki á óvart því hún segir ekki mögulegt að framkvæma þetta með sómasamlegum hætti.
„Þær eru skelfingu losnar, hryssurnar, það að setja hest inn í þröngan blóðtökubás og binda höfuðið á honum upp og strappa bakið niður, stinga hann í hálsinn með þykkri nál eru örugglega verstu aðstæður sem þú getur sett hesta í, vegna þess að þeir eru flóttadýr. Og þeir vilja flýja slæmar aðstæður.“
Úr blóði hinna fylfullu hryssna er að finna hormón sem fyrirtækið Ísteka einangrar og kemur í sölu.
„Er einhver þörf fyrir þetta hormón? Við erum að pína íslenskar hryssur til að pína erlendar gyltur eða svín í verksmiðjubuskap til að auka frjósemi þeirra og aðstæðurnar sem þessi svin búa við eru alveg ömurlegar, þannig að að má segja að þetta sé einhvers konar þarflaus þjáningarhringur sem við verðum að stöðva.“