Skoðun

Greiðar sam­göngur í Norðvesturkjördæmi

Ólafur Adolfsson skrifar

Samgöngumál í Norðvesturkjördæmi hafa lengi verið hitamál, þar sem bágborið ástand vega hefur bæði áhrif á lífsgæði íbúa og á efnahagslegan uppgang. Eitt dæmi af mörgum má taka af vegakerfinu á Vestfjörðum sem hefur ekki fylgt eftir þróun í atvinnulífi og þjónustu. Mikil verðmætasköpun á sér stað á Vestfjörðum, meðal annars vegna aukinnar atvinnuuppbyggingar og þrótti í nýsköpun á undanförnum árum, en vegirnir, sem sumir voru lagðir fyrir hálfri öld eru víða ófullnægjandi og eru íbúum og atvinnulífi til trafala. Fundur Innviðafélags Vestfjarða var vart búinn þegar aurskriður fóru að falla á vegina með þeim afleiðingum að þeir lokuðust á norðanverðum Vestfjörðum.

Þessi innviðaskuld er sérlega þungbær þegar vetrarþjónusta er ófullnægjandi, eins og fram kemur í könnun Vestfjarðastofu þar sem stór hluti íbúa sunnanverðra Vestfjarða veigrar sér við að fara á milli byggðarlaga á veturna. Vegna þessa er verðmætasköpun hamlað og samgöngubætur sem þó hafa orðið nýtast ekki eins og til var ætlast. Einnig koma þessar takmarkanir niður á heilbrigðisþjónustu, þar sem sjúklingar þurfa oft að ferðast langar leiðir yfir ótryggar leiðir til að komast í nauðsynlega aðhlynningu.

Að bregðast við þessu er eitt af forgangsatriðum okkar. Við styðjum hugmyndir Innviðafélags Vestfjarða enda byggist Sjálfstæðisstefnan m.a. á því að hjálpa fólki til sjálfshjálpar, þar sem það er nokkur kostur. Sjálfstæðismenn hafa lagt fram frumvarp um Samfélagsvegi á Alþingi þrisvar á þessu kjörtímabili, sem myndi opna á þann möguleika að heimamenn myndu sjálfir hafa meira vald til að flýta framkvæmdum. Samgöngubætur eru nauðsynlegur þáttur í því að íbúar kjördæmisins njóti sömu lífsgæða og aðrir landshlutar.

Þörfin fyrir betri vegi er ekki bara spurning um þægindi heldur um sjálfbærni svæðisins, lífsgæði og öryggi. Þörfin er ekki eingöngu á Vestfjörðum heldur víðar í kjördæminu. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi standa vörð um grundvallarkröfur íbúa og stefna á að bæta innviðina með það að markmiði að efla samfélagið og gera Norðvesturkjördæmi að jafnoka annarra svæða á landinu. Það eru ekki bara hagsmunir kjördæmisins, heldur landsmanna allra að samgöngur séu greiðar í Norðvesturkjördæmi.

Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×