Samanlagður ræðutími Björns Levís á kjörtímabilinu frá 2021 til 2024 var rúmar 84 klukkustundir eða sem jafngildir þremur sólarhringum, tólf klukkustundum og 22 mínútum. Næstur í röðinni var flokkbróðir hans Gísli Rafn Ólafsson sem talaði í tæpar 72 klukkustundir.
Botnsætið vermir Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem samtals talaði í rétt um sex klukkustundir á kjörtímabilinu, ef frá er talin Eva Dögg Davíðsdóttir þingmaður VG sem tók sæti á þingi í stað Katrínar Jakobsdóttur þegar hún hætti fyrr á þessu ári. Eva Dögg hafði þó áður komið inn sem varaþingmaður í nokkur skipti á kjörtímabilinu og hefur samtals staðið í rétt rúmar tvær klukkustundir í ræðustól.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar verma öll sæti á topp tíu listanum yfir lengsta samanlagða ræðutímann en stjórnarþingmenn taka hins vegar níu af tíu sætum á botninum.
Tíu afkastamestu ræðumennirnir á Alþingi á kjörtímabilinu
- Björn Leví Gunnarsson, Píratar: 84 klst. og 22 mínútur
- Gísli Rafn Ólafsson, Píratar: 71 klst. og 39 mínútur
- Eyjólfur Ármannsson, Flokkur fólksins: 69 klst. og 25 mínútur
- Andrés Ingi Jónsson, Píratar: 65 klst. og 36 mínútur
- Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, Píratar: 58 klst. og 43 mínútur
- Guðmundur Ingi Kristinsson, Flokkur fólksins: 53 klst. og 41 mínúta
- Inga Sæland, Flokkur fólksins: 48 klst. og 53 mínútur
- Jóhann Páll Jóhannsson, Samfylkingin: 42 klst. og 43 mínútur
- Bergþór Ólason, Miðflokkur: 42 klst. og 2 mínútur
- Guðbrandur Einarsson, Viðreisn: 39 klst. og 18 mínútur
*Ræðutíminn er námundaður að næstu heilu mínútu.
Þessir þingmenn vörðu minnstum tíma í pontu á kjörtímabilinu
- Eva Dögg Davíðsdóttir, VG: 2 klst. og 7 mínútur
- Ásmundur Friðriksson, Sjálfstæðisflokkur: 5 klst. og 59 mínútur
- Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Framsóknarflokkur: 6 klst. og 0 mínútur
- Tómas A. Tómasson, Flokkur fólksins: 6 klst. og 41 mínúta
- Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Sjálfstæðisflokkur: 6 klst. og 58 mínútur
- Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Framsóknarflokkur: 8 klst. og 3 mínútur
- Bjarni Jónsson, VG/utan flokka: 8 klst. og 23 mínútur
- Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokkur: 8 klst. og 39 mínútur
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Sjálfstæðisflokkur: 8 klst. og 53 mínútur
- Hildur Sverrisdóttir, Sjálfstæðisflokkur: 8 klst. og 54 mínútur
*Ræðutíminn er námundaður að næstu heilu mínútu.
Meðalræðutími þingmanna eftir þingflokkum
- Píratar: 59,7 klst.
- Miðflokkurinn: 36,4 klst.
- Flokkur fólksins: 36,3 klst.
- Viðreisn: 31,8 klst.
- Samfylkingin: 23,9 klst.
- Vinstri græn: 15,4 klst.
- Sjálfstæðisflokkurinn: 15,0 klst.
- Framsóknarflokkurinn: 13, 9 klst.