Í fréttum Stöðvar 2 mátti sjá Airbus A330-breiðþotu Air Greenland, flaggskip grænlenska flugflotans, koma svífandi inn til lendingar í beinu flugi frá Kaupmannahöfn. Mannfjöldi safnaðist saman í kringum flugvöllinn til að verða vitni að þessari fyrstu lendingu stórrar farþegaþotu í höfuðstað Grænlands.

Ný 2.200 metra flugbraut var lögð í stað eldri 950 metra langrar brautar. Það þýðir að núna þurfa farþegar til og frá Nuuk ekki lengur að fljúga um Kangerlussuaq-flugvöll á leið sinni í þotuflug milli landa en áður gátu aðeins smærri flugvélar sérhæfðar fyrir stuttar brautir lent í Nuuk.

Áður hafði flugvél Isavia ANS gert flugprófanir á nýju brautinni, sem búin er fullkomnum aðflugstækjum og ljósabúnaði fyrir báða brautarenda. Það gerir flugvélum kleift að lenda í myrkri og slæmu skyggni. Samkvæmt upplýsingum frá Isavia ANS sá félagið um alla hönnun flugferla að vellinum sem og prófanir þeirra.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Hér má sjá lengra myndband grænlenska sjónvarpsins KNR af komu þotunnar til Nuuk í dag: