Greint var frá því í gær að Samtökin '78 hefðu lagt fram kæru á hendur Eldi S. Kristinssyni oddvita Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi vegna sjö ummæla sem hann hefur lagt fram opinberlega í garð trans fólks.
Í skoðanagrein sem Eldur birti á Vísi í gær sagði hann kæru samtakanna pólitískar ofsóknir.
Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna '78 sagði ummælin óverjanleg og þau vegi að öryggi starfsfólki þeirra. „Hann fullyrðir í einum ummælum að Samtökin '78 séu að grooma eða tæla börn. Í öðrum ummælum kallar hann trans konur barnaníðinga.“
Ummælin sem Eldur er kærður fyrir lét hann falla á eins og hálfs árs tímabili, meðal annars í Morgunblaðið og á samfélagsmiðlana Facebook og X. „Ég meina, þessi drusla! Að nota smábörn til að fullnægja augljósum afbrigðilegum kynlífsblætum í mönnum sem kallast b-a-r-n-a-g-i-r-n-d!“ skrifaði hann á X árið 2023.
Fleiri ummæli Elds sem kærð hafa veirð til lögreglu má nálgast í fréttinni hér að ofan.
Óskaði borgarstjórn kynfæravarta
Ummælin sjö sem Eldur er kærður fyrir eru þó ekki þau einu sem hann hefur sett fram um trans fólk, en Facebook síðurnar Samtökin 22 - Hagsmunasamtök samkynhneigðra og persónuleg Facebook síða Elds eru hlaðnar áróðri sem í flestum tilvikum felur í sér vanþóknun gagnvart trans fólki. Síðan bar áður nafnið Eldur Deville, en nafni hennar hefur verið breytt.
Þá virðist hann að auki óánægður með sitjandi borgarstjórn en í lok árs 2022 fór hann heldur ófögrum orðum um borgarstjórnina.

Í færslu sem Eldur birti þann 13. apríl kemst hann svo að orði að nokkrar íslenskar trans konur séu karlar að þykjast vera konur og séu að fronta „innrás á kvennarými“. „Hvernig stendur á því að körlum er svona mikið í mun að bera sig fyrir framan kvenfólk og stúlkur?“

Færslur þar sem Eldur sakar trans fólk um barnagirnd eru ófáar. Færslur sem innihalda orðræðu um að „vernda þurfi börnin“ frá trans áróðri.
„Við byrjum árið á tveimur nýjum orðum. Hommaherma: kvenmaður sem skilgreinir sig sem trans og homma. Látbragðslesbía: karlmaður sem skilgreinir sig sem trans og lesbíu. Nú er það okkar að festa þessi nýyrði í sessi,“ segir Eldur í einni færslu sem fréttastofa á skjáskot af.
Eftirfarandi stendur á ensku í færslu Elds þar sem hann hæðist að kynsegin fólki, sem notast við fornafnið hán.
„Þau mega nauðga konunum okkar en við munum aldrei ruglast á fornöfnunum þeirra.“

„Trans lesbíur eru gagnkynhneigðir karlmenn,“ segir á ensku í færslu á síðum Samtakanna 22. Margar sambærilegar færslur er að finna á þeirri síðu.
Eldur er sem fyrr segir á lista Lýðræðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Samkvæmt könnun Maskínu síðan í gær mælist flokkurinn með eins prósents fylgi.