Innlent

Væri æski­legt að geta séð niður­stöður eftir kjör­stöðum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Útlit er fyrir að þingmönnum Sjálfstæðisflokksins fækki um tvo eftir kosningarnar. 
Útlit er fyrir að þingmönnum Sjálfstæðisflokksins fækki um tvo eftir kosningarnar.  Vísir/Vilhelm

Formaður Sjálfstæðisflokksins segist klóra sér í hausnum yfir velgengni Flokks fólksins sem fjármálaráðherra til langs tíma. Margt sem flokkurinn hafi talað fyrir myndi kosta ríkissjóð verulega. Bjarni segir æskilegt að hægt yrði að sjá nánara niðurbrot atkvæða í kjördæmunum. 

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins ræddi þau úrslit sem fyrir liggja í Sprengisandi. 

„Í öllu falli erum við að fara fram úr öllum spám og að því leytinu til segjum við að við höfum háð árangursríka baráttu,“ segir Bjarni. Skoðanakannanir hafi í upphafi spáð þeim um fjórtán prósentum en sem stendur er Sjálfstæðisflokkurinn í rúmum nítján prósentum. 

Hann segir styrk Flokks fólksins koma sér mest á óvart í kosningunum. Flokkurinn hlaut til að mynda fleiri atkvæði en Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi. 

„Þetta er ein af ástæðum þess, sérstaklega þegar við erum komin með svona stór kjördæmi, sem ég myndi vilja fá, frá kjörstöðunum, meira niðurbrot atkvæða. Maður vill skilja hvað er að gerast.“

Hann segir Suðurkjördæmið stórt og í því séu nokkrir ákveðnir kjarnar. „Ég skil alveg sjónarmiðin frá fyrri tíðum um að menn vilji ekki greina úrslitin þannig að þau séu persónugreinanleg. En fyrir kjósendur í landinu og þroskaða stjórnmálaumræðu væri auðvitað mjög æskilegt að geta séð atkvæðin eins og þau lágu fyrir hjá hverjum kjörstað.“

Hann spyrji sig hvernig atkvæðin liggi eftir mismunandi bæjarfélögum. Stjórnmálaumræðan væri skemmtilegri væri hægt að taka hana frá dýpri grunni. 

Sem fjármálaráðherra til langs tíma segist hann klóra sér í hausnum yfir velgengni Flokks fólksins. 

„Því mér finnst margt sem þau hafa verið að segja myndi kosta ríkissjóð verulega, bæði til skamms tíma og langs tíma. Frumvörpin sem þau hafa lagt fram í þinginu hafa af fjármálaráðuneytinu í einstaka tilvikum verið metin einstök frumvörp. Upp á að lágmarki tugi milljarða og allt yfir hundrað milljarða.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×