Innlent

„Ég er sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkis­stjórn“

Jakob Bjarnar skrifar
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir ekki hægt að lesa neinn vinstri sigur úr niðurstöðum kosninganna.
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segir ekki hægt að lesa neinn vinstri sigur úr niðurstöðum kosninganna. vísir/vilhelm

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins er hvergi nærri af baki og lýsir því yfir að það séu ýmis stjórnarmynstur inni í myndinni. Hann lítur ekki á niðurstöður kosninganna sem einhvern sigur vinstrisins.

Fjölmargir hafa lýst því yfir að við blasi að „Valkyrkjustjórnin“ svokölluð, Samfylking, Viðreisn og Flokkur fólksins, hljóti að vera fyrsti kostur í stöðunni. Bjarni sat fyrir svörum á Sprengisandi ásamt þeim Bergþóri Ólasyni Miðflokki og Sigurði Inga Jóhannssyni formanni Framsóknarflokksins og hann var ekki á því. 

Bjarni bar sig vel.

„Flokkurinn er áfram klettur í íslenskum stjórnmálum,“ sagði Bjarni og var til þess að gera brattur. „Samfylkingin er að koma úr mikilli eyðimerkurgöngu og fór með himinskautum. En hann gerði eiginlega ekkert annað alla kosningabaráttuna en að tapa fylgi. þetta er alls ekki þessi afgerandi sigur, þetta er minna en ég fékk í síðustu kosningum og þá töluðu menn um afhroð,“ sagði Bjarni.

Bjarni sagði að ef Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar yrði sett við borðið með þeim félögum, kona sem hann eigi erfitt með að sjá fyrir sér sem vinstri mann þó hún hafi verið að færast í átt til einhvers konar miðju jafnaðarmennsku uppá síðkastið, þá værum við með ríflegan meirihluta.

„Og það er ekki vinstri niðurstaða.“

Sigurður Ingi sagði að ekki væri alltaf einfalt mál að rýna í niðurstöður lýðræðislegra kosninga og fá út einhvern einn vilja. alltaf sé flókið að setja saman ríkisstjórn. En ríkisstjórninni var hafnað?

„Já, við skulum nú átta okkur á því að ég var sá fyrsti sem hafnaði þessari ríkisstjórn þannig að við skulum nú ekki einu sinni ræða þetta,“ sagði Bjarni og hló.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×