„Viðtökurnar hafa verið afar góðar. Við höfum við fengið afar sterk viðbrögð við gæðum, útliti og verðum varanna ásamt því að fólk hefur haft orð á því að heildarmynd merkisins og verslunarinnar sjálfrar sé bæði falleg og afslöppuð,“ segir Gunni Hilmarsson, yfirhönnuður, stofnandi og einn af eigendum Thomsen Reykjavík. Í dag er eingöngu boðið upp á karlmannsfatnað en fljótlega bætast inn vörur fyrir konur að sögn Gunna.

Fatamerkið inniheldur hefðbundinn fatnað á borð við jakkaföt, skyrtur, peysur, boli, yfirhafnir og sokka auk þess sem boðið er upp á vörur frá öðrum fatamerkjum eins og skó, gallabuxur og töskur.
Thomsen Reykjavík átti sér stuttan aðdraganda en þar sem stofnendur búa yfir mikilli reynslu af hönnun og framleiðslu tókst að setja upp merkið, verslunina og vefsíðuna á nokkuð skömmum tíma. „Nafnið er fengið frá Thomsen Magasín sem var á sama svæði og Thomsen Reykjavík er staðsett, þ.e. á Hafnartorgi, nánar tiltekið á Tryggvagötu 21. Thomsen Magasin var stofnað 1837 og var orðin stærsta verslun Reykjavíkur árið 1900 með mörgum deildum í nokkrum húsum. Þar var m.a. boðið upp á sér saumuð föt, húsgögn, skó, nýlenduvörur og margt fleira.“
Thomsen Reykjavík leggur sérstaklega mikla áherslu á sér saumuð jakkaföt en þau eru framleidd af einni glæsilegustu verksmiðju í Evrópu sem býr yfir áratuga reynslu.
„Að kaupa sérsaumuð jakkaföt er góð skemmtun þar sem viðskiptavinurinn fer í gegnum ítarlegt ferli með fagmönnum okkar. Þar er hvert smáatriði ákveðið í sameiningu, svo sem snið, efni, tölur, fóður og ýmis smáatriði. Okkar hlutverk er fyrst og fremst að sjá til þess að sniðin séu fullkomin, henti öllum líkamstegundum og að viðskiptavinurinn fái draumajakkafötin sín sem munu endast og standast tímans tönn. Hægt er að velja allt frá afslöppuðum jakkafötum upp í hátíðleg föt eins og smóking og þess háttar. Viðskiptavinurinn fær svo uppáhalds fötin sín þremur vikum eftir pöntun.“
Jólavertíðin er komin á fullt og býst Gunni við annasömum desembermánuði. „Ég hlakka mikið til að taka á móti fólki núna í desember enda eigum við margt fallegt í jólapakkann eins og fallega trefla, húfur og notalegar peysur svo ekki sé minnst á jólafötin sjálf.“

Nánari upplýsingar á vef Thomsen Reykjavík.