Innlent

Tveir grunaðir um frelsis­sviptingu

Samúel Karl Ólason skrifar
Mennirnir sem grunaðir eru um frelsisviptingu voru í annarlegu ástandi.
Mennirnir sem grunaðir eru um frelsisviptingu voru í annarlegu ástandi. Vísir/Vilhelm

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um rán og frelsissviptingu í íbúð í Breiðholti. Tveir voru handteknir þegar lögregluþjóna bar að garði og settir í fangaklefa.

Í dagbók lögreglunnar segir að þeir hafi báðir verið í annarlegu ástandi vegna fíkniefnaneyslu.

Þá segir einnig í dagbókinni að lögregluþjónar hafi farið í útkall í Árbænum vegna tilkynningar um hávaða. Þar var rætt við fólk sem sögðu lögregluþjónum að þau hefðu verið að rífast vegna eyðslu þeirra í fíkniefni og að jólin væru á næsta leyti.

Lögregluþjónar handtóku í dag mann sem var í annarlegu ástandi í verslun í Reykjavík. Þar hafði hann brotið hurð og var hann færður í fangaklefa, þar til hægt er að taka af honum skýrslu.

Einnig þurftu lögregluþjónar að skakka leikinn milli tveggja nágranna Í Múlunum sem voru að rífast. Ekki fylgir sögunni um hvað þeir voru að rífast.

Einn slasaðist lítillega þegar hann velti bíl sínum í Hafnarfirði í dag. Aðstandandi sem sótti hann flutti ökumanninn til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×