Með sigrinum komst Leverkusen á topp deildarinnar. Liðið er með 26 stig, einu stigi á undan Wolfsburg. Frankfurt og meistarar Bayern München eru svo með 23 stig í 3. og 4. sætinu.
Staðan í hálfleik var markalaus en hin danska Cornelia Kramer skoraði eina mark leiksins í upphafi seinni hálfleiks.
Karólína kom inn á sem varamaður hjá Leverkusen þegar átján mínútur voru eftir. Sveindís var í byrjunarliði Wolfsburg en var tekin af velli á 81. mínútu.
Leverkusen hefur leikið vel á tímabilinu og tekið framförum frá því í fyrra þegar liðið endaði í 6. sæti.