Á vef Veðurstofunnar segir að það sé heldur að kólna og stefni í vægt frost eftir hádegið.
„Í kvöld og nótt nálgast næsta lægð úr suðvestri. Hún veldur suðaustanátt á morgun, stinningskaldi eða allhvass vindur. Úrkomusvæði lægðarinnar fer yfir og því má víða um land búast við ringingu eða slyddu. Útlit er fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands um tíma eftir hádegi og þá hefur hlýnað vel yfir frostmark um mestallt land,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á miðvikudag: Suðaustan 10-18 m/s og talsverð rigning eða slydda, en úrkomuminna á Norðausturlandi. Hlýnar í veðri, hiti 2 til 9 stig síðdegis.
Á fimmtudag: Sunnan og suðvestan 8-15 og slydduél, en bjartviðri norðaustantil. Hiti 0 til 5 stig. Snýst í norðanátt með snjókomu norðvestanlands um kvöldið og kólnar.
Á föstudag: Norðvestanátt og snjókoma eða él um landið norðanvert. Bjartviðri sunnanlands og síðar einnig vestantil á landinu. Frost 0 til 8 stig.
Á laugardag: Sunnanátt með slyddu og síðar rigningu, hlýnar um tíma. Vestlægari og skúrir eða él vestantil um kvöldið.
Á sunnudag: Suðvestanátt og él, en þurrt austanlands. Hiti um og undir frostmarki.
Á mánudag: Breytileg og síðar norðlæg átt og víða él, en léttir til á sunnanverðu landinu. Herðir á frosti.