Þetta kemur fram í tilkynningu frá Garðheimum. Þar segir að Jóna Björk sé menntaður viðskiptafræðingur frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur einnig stundað nám í markaðsfræðum við The University of Maryland.
„Hún býr að fjölbreyttri reynslu sem mun nýtast vel í leiðtogahlutverkinu, m.a. sem markaðsstjóri félagsins,“ segir í tilkynningunni.
„Ég er afar spennt að taka við þessu starfi og hlakka til að vinna áfram að uppbyggingu og vexti fyrirtækisins okkar á nýjum stað. Ég vil líka nota tækifærið og þakka Kristínu fyrir einstakt starf undanfarin ár, þá sérstaklega við byggingu nýju verslunarinnar okkar.“ er haft eftir Jónu Björk.
Þá segir að Kristín láti af störfum sátt með þann árangur sem hafi náðst á hennar vakt. Einnig kemur fram að hún óski Jónu velfarnaðar í starfinu.