Erlent

Mót­mælt á meðan minningar­at­höfn stóð yfir

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Fjöldi fólks hefur komið og lagt blóm við Johannis kirkju í Magdeburg til minningar um fórnarlömb árasar á jólamarkaði í borginni í gærkvöldi.
Fjöldi fólks hefur komið og lagt blóm við Johannis kirkju í Magdeburg til minningar um fórnarlömb árasar á jólamarkaði í borginni í gærkvöldi. AP/Michael Probst

Olaf Scholz Þýskalandskanslari heimsótti Magdeburg í dag til að minnast þeirra sem féllu í mannskæðri árás þar í borg í gær og votta hinum særðu virðingu sína. Hann hefur heitið því að málið verði rannsakað til hlítar. Á meðan fjöldi fólks, meðal annars fjölskyldur fórnarlamba árásarinnar og viðbragðsaðilar, sóttu minningarathöfn í dómkirkjunni, létu mótmælendur eftir sér taka á götum borgarinnar.

Minnst fimm eru látnir og rúmlega tvö hundruð særðir eftir að bíl var ekið á miklum hraða inn í þvögu fólks á jólamarkaði í Magdeburg í gærkvöld. Árásarmaðurinn er talinn hafa verið einn að verki.

Þýski miðillinn Deutsche Welle segir frá minningarathöfn við dómkirkjuna í Magdeburg í kvöld þar sem fjöldi fólks kom saman til að minnast hinna látnu. Fram hefur komið í fréttum að hinn grunaði árásarmaður sé læknir frá Sádi-Arabíu sem hefur búið í Þýskalandi í allmörg ár. Þá er honum lýst sem stuðningsmanni stjórnmálaflokknum AfD, fjar-hægri stjórnmálaafls sem sumir segja halda uppi öfgafullum málflutningi.

Á meðan syrgjendur komu saman í dómkirkjunni gekk hópur mótmælenda, fólk sem tilheyrir hinu svokallaða fjar-hægri, um götur borgarinnar og kyrjaði meðal annars „Við erum fólkið,“ og báru borða með skilaboðunum „heimaland“ og „heimflutningur“ að því er fram kemur í umfjöllun DW. Lögreglan áætlar að um þúsund mótmælendur hafi tekið þátt í göngunni.

Hópur fjar-hægrimanna gekk um með borða í Magdeburg í kvöld. AP

Auk Schols kanslara voru fleiri ráðamenn viðstaddir minningarathöfnina, meðal annars Frank-Walter Steinmeier, forseti Þýskalands. „Fólskuleg árás gærkvöldsins skilur okkur eftir sorgmædd og reið, hjálparlaus og óttaslegin, í óvissu og örvæntingarfull, orðlaus… við erum í áfalli og finnum fyrir afleiðingunum. Við erum hér í kirkjunni í kvöld með tilfinningar sem erfitt er að ná utan um,“ sagði Gerhard Feige biskup sem stýrði athöfninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×