Erlent

Kraumar í fjarhægriflokknum sem á­rásar­maðurinn studdi

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Stuðningsmenn AfD hópuðust saman í gær og kölluðu öfgakennd slagorð um innflytjendur vegna árásarinnar í Madgeburg. Þýskur dómstóll hefur staðfest flokkinn sem mögulega hættuleg öfgasamtök. 
Stuðningsmenn AfD hópuðust saman í gær og kölluðu öfgakennd slagorð um innflytjendur vegna árásarinnar í Madgeburg. Þýskur dómstóll hefur staðfest flokkinn sem mögulega hættuleg öfgasamtök.  EPA

Alternative für Deutschland, öfgahægriflokkurinn sem árásarmaðurinn sem drap fimm er hann ók sendibíl á gesti jólamarkaðar í Madgeburg studdi, stóð fyrir minningaviðburði í gær vegna voðaverkanna. Þar var gert ákall eftir brottvísunum og lokuðum landamærum, orðræða sem svipar til viðhorfa árásarmannsins. 

Í árlegu jólaávarpi sínu í dag sagði Frank-Walter Steinmeier forseti Þýskalands að atburðirnir í Madgeburg síðustu daga hafi varpað dökkum skugga á hátíðahöld Þjóðverja í ár. Fimm létu lífið og yfir tvö hundruð meiddust þegar sendibíl var ekið inn á jólamarkað í borginni þann 20. desember. 

Hann biðlaði til fólks að standa saman í stað þess að tvístrast vegna öfgakenndra skoðana. Árásarmaðurinn, fimmtugur læknir frá Sádi-Arabíu, hefur verið ákærður fyrir verknaðinn en tilefni árásarinnar liggur enn ekki fyrir.

Sjá einnig: Sádar sagðir hafa sent fjórar við­varanir

Þýski öfgahægriflokkurinn AfD stóð fyrir minningarviðburði vegna árásarinnar í gær. Í frétt BBC segir að Alice Weidel einn leiðtogi flokksins hafi kallað eftir breytingum „til þess að við getum loksins búið við öryggi á ný“ og viðstaddir svarað með því að kalla „brottvísum þeim“. 

Samkvæmt upplýsingum frá yfirvöldum er ýmislegt ódæmigert við árásarmanninn. Aðrar árásir sem gerðar hafa verið á jólamarkaði í Þýskalandi hafa verið raktar til hryðjuverkasamtaka. Í umfjöllun BBC segir að árásarmaðurinn hafi gagnrýnt Islam og lýst yfir stuðningi við AfD og innflytjendastefnu hans á samfélagsmiðlum. 

AfD hefur ekki tjáð sig um samfélagsmiðlafærslur árásarmannsins tengdar flokknum. Þrátt fyrir neikvæða orðræðu hans gagnvart bæði innflytjendum og Íslam hefur Martin Reichardt leiðtogi flokksins í Saxlandi-Anhalt sagt á X að „árásin í Madgeburg sýni að verið er að draga Þýskaland í pólitískt og trúarlegt ofstæki sem á uppruna sinn í annan heim.“

Fylgi flokksins mælist hátt í skoðanakönnunum en þingkosningar fara fram í lok febrúar. Vegna árásarinnar og orðræðu flokksins vegna hennar gagnvart innflytjendum er ljóst að innflytjendamál verða í brennidepli í kosningabaráttunni.


Tengdar fréttir

Stað­festir flokkun AfD sem öfga­sam­taka

Þýskur dómstóll staðfesti flokkun hægrijaðarflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) sem mögulegra hættulegra öfgasamtaka. Niðurstaðan þýðir að lögregla hefur rétt til þess að fylgjast með flokknum með hlerunum og uppljóstrurum.

Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir

Olaf Scholz Þýskalandskanslari heimsótti Magdeburg í dag til að minnast þeirra sem féllu í mannskæðri árás þar í borg í gær og votta hinum særðu virðingu sína. Hann hefur heitið því að málið verði rannsakað til hlítar. Á meðan fjöldi fólks, meðal annars fjölskyldur fórnarlamba árásarinnar og viðbragðsaðilar, sóttu minningarathöfn í dómkirkjunni, létu mótmælendur eftir sér taka á götum borgarinnar.

Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann

Ungt íslenskt par sem býr örskammt frá jólamarkaðnum í Magdeburg í Þýskalandi segist vera illa brugðið eftir að maður ók bifreið sinni á tugi manna fyrr í kvöld. Það hafi ekki hvarflað að þeim að slíkt gæti gerst í Magdeburg. Búið sé að eyðileggja hátíðirnar í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×