Menning

Jólahaldið allt í rugl þegar frum­sýning er annan í jólum

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Gísli Örn Garðarsson, baksviðs í Þjóðleikhúsinu í kvöld.
Gísli Örn Garðarsson, baksviðs í Þjóðleikhúsinu í kvöld. vísir

Leikritið Yerma, jólasýning Þjóðleikhússins í ár, er frumsýnt í kvöld. Gísli Örn Garðarsson leikstjóri verksins segir jólahald fara „allt í rugl“ þegar frumsýning er haldin annan í jólum.

Gísli Örn ræddi leikverkið rétt fyrir frumsýningu í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Áhorfendur eiga von á stóru leikhúsi,“ segir Gísli Örn. „Þetta er mjög tilfinningaríkið leikhús, í bland við léttleika og húmor. Þetta er svolítið eins og lífið, fjallar um hjón sem ákveða að fara í það ferðalag að eignast barn, eftir að hafa ákveðið að eignast alls ekki barn. Við fylgjum þeim í þessu ferðalagi. Þetta er um það þegar við sem manneskjur ætlum að stjórna öllu sjálf, en svo er það náttúran sem ræður algjörlega hvað gengur upp og hvað ekki.“

Stórskotalið leikara fer fyrir sýningunni, nánar tiltekið þau Nína Dögg Filippusdóttir, Björn Thors, Guðjón Davíð Karlsson, Ilmur Kristjánsdóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Vala Kristín Eiríksdóttir. 

Gísli segir að allt sé vel æft í sýningunni, þar á meðal uppklappið. 

„Það þarf að huga að öllu. Nú er korter í frumsýningu og við erum enn þá að nostra við lokin. Þetta er eins og að fá jólamáltíðina aftur, þar sem allt verður að vera fullkomið þegar klukkan slær sex“

Hvaða áhrif hefur það að sýna annan í jólum? Hvernig hefur jólahaldið verið á þínu heimili?

„Það fer náttúrulega allt í rugl, þetta er eiginlega ekki á neinn leggjandi. Þetta er smá eins og að stökkva hástökki, og á Þorláksmessu ertu að fara að taka stökkið en þá segir einhver „bíddu, við þurfum að halda jólin“ og svo kemurðu þér aftur fyrir á annan í jólum og þá máttu loksins hoppa.“

Leikritið er byggt á samnefndu meistaraverki Federico García Lorca frá árinu 1934 sem gerist í spænsku sveitasamfélagi. Höfundur leikritsins, hinn heimsþekkti leikhúsmaður Simon Stone, flytur atburðarásina inn í borgarsamfélag samtímans, samkvæmt því sem kemur fram á vefsíðu Þjóðleikhússins






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.