Lífið

Angus MacInnes er látinn

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Angus MacInnes í hlutverki Jon Vander ásamt Carrie Fisher í hlutverki Leiu Geimgengils þar sem þau eru að undirbúa árás á Helstirnið.
Angus MacInnes í hlutverki Jon Vander ásamt Carrie Fisher í hlutverki Leiu Geimgengils þar sem þau eru að undirbúa árás á Helstirnið. 20th Century Fox

Kanadíski leikarinn Angus MacInnes er látinn 77 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Jon Vander eða „Gullni leiðtogi“ í fyrstu Stjörnustríðsmyndinni.

Fjölskylda MacInnes greindi frá andláti hans á opinberri læksíðu leikarans á Facebook. Þar kemur fram að hann hafi látist friðsællega umkringdur fjölskyldu sinni á þorláksmessu. Ekki kemur fram hver orsök andlátsins var.

MacInnes fæddist 27. október 1947 í borginni Windsor í Ontario í Kanada. Fyrsta hlutverk hans á stóra skjánum var smávægileg rulla í dystópíu-íþróttamyndinni Rollerball. Aðeins tveimur árum síðar landaði hann sínu þekktasta hlutverki sem Jon „Dutch“ Vander í Stjörnustríði árið 1977.

Költfígúra meðal aðdáenda

Persónan sem gekk einnig undir nafninu „Gullni leiðtogi“ var einn af flugmönnum uppreisnarhersins sem tóku þátt í og létust við að eyðileggja Helstirnið. 

Rulla MacInnes var ekki stór en hann var þrátt fyrir það í miklu uppáhaldi hjá aðdáendum Stjörnustríðsmyndanna og var tíður gestur á ráðstefnum í tengslum við myndirnar. Rödd hans var síðan aftur notuð í myndinni Rogue One: A Star Wars Story árið 2016.

MacInnes lék í um fjörutíu kvikmyndum og sjónvarpsþáttum á ferli sínum sem spannaði um fjóra áratugi. Auk fyrrnefndra mynda lék hann einnig í Witness árið 1985 sem spillti lögregluþjónninn Fergie, sem hokkíspilarinn Jean LaRose í grínmyndinni Strange Brew og í smærri hlutverkum í Superman II, Hellraiser II, Judge Dredd, Eyes Wide Shut, Hellboy og Captain Phillips.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.