Enski boltinn

Börn Dag­nýjar eftir á Ís­landi: Blá­kaldur raun­veru­leikinn á fyrsta degi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dagný Brynjarsdóttir með sonum sínum Brynjari Atla og Andreas Leó sem báðir eru Ómarssynir. Myndin er tekin eftir leik með West Ham.
Dagný Brynjarsdóttir með sonum sínum Brynjari Atla og Andreas Leó sem báðir eru Ómarssynir. Myndin er tekin eftir leik með West Ham. @dagnybrynjars

Íslenska knattspyrnukonan Dagný Brynjarsdóttir þurfti að skilja syni sína eftir á Íslandi þegar hún fór aftur til vinnu sinnar í Englandi.

Dagný er atvinnukona hjá enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham og framundan er seinni hluti tímabilsins.

Hún hefur lagt mikla vinnu á sig í endurkomunni eftir að hafa eignast sitt annað barn í febrúar. Nú er tími til að uppskera og skila mikilvægu hlutverki á miðjunni hjá West Ham.

Dagný sagði frá því á samfélagsmiðlum hversu erfitt það var að skilja strákana sína eftir á Íslandi. Brynjar Atli er sex ára og Andreas Leó er tíu mánaða.

„Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi. Þakklát fyrir að hafa varið nýársmorgni með fjölskyldunni en kveðjustundin í dag var erfið þrátt fyrir að ég hafi haft tvo mánuði til að undirbúa mig,“ skrifaði Dagný.

„Málið er að það er oft bara ógeðslega erfitt að vera afreksíþrótta mamma og að búa í öðru landi gerir hlutina oft ennþá erfiðari,“ skrifaði Dagný. Hún er ein af mörgum íslenskum íþróttakonum sem hafa sýnt og það og sannað að það er möguleiki að komast aftur í fremstu röð eftir barnsburð.

„Í dag flaug ég alein út. Strákarnir voru eftir á Íslandi með pabba sínum þar sem hann þarf líka að mæta til vinnu og stuðningsnetið okkar er þar,“ skrifaði Dagný.

„Ég þarf á hjálp að halda í næsta mánuði og valdi að nýta aðstoðina frekar þá. Ég hef aldrei kvatt yngri son minn fyrr en í morgun. Hann fékk líka seinustu brjóstagjöfina í dag sem gerir allt örugglega miklu erfiðara enda er hann brjóstasjúkur og við höfum elskað þennan tíma saman,“ skrifaði Dagný.

„Ég veit hins vegar að fyrir sjálfa mig og mína orku inn á vellinum að þá er það best að þessu ljúki núna þó að ég sé langt frá því tilbúin til þess,“ skrifaði Dagný.

Dagný hefur sýnt mikinn styrk í að halda áfram á hæsta stigi fótboltans þrátt fyrir að hafa eignast barn númer tvö. Það sést samt á þessum pistli hennar að þetta kallar á miklar fórnir sem reyna gríðarlega mikið á móðurhjartað.

Sjá má pistil hennar hér fyrir neðan.

@dagnybrynjars



Fleiri fréttir

Sjá meira


×