Innlent

Bjóða fólki í kuldaþjálfun

Elísabet Inga Sigurðardóttir og Eiður Þór Árnason skrifa
Agnieszka og Laura eru fastagestir í Nauthólsvík yfir vetrartímann.
Agnieszka og Laura eru fastagestir í Nauthólsvík yfir vetrartímann. Stöð 2

Hópur fólks kemur saman tvisvar í viku á Ylströndinni í Nauthólsvík í þeim tilgangi að reyna að sigrast á kuldanum. Þar fer fram svokölluð kuldaþjálfun þar sem fólk fer á sundfötunum í snjóinn, tekur nokkur dansspor, hrópar, hlær og fer svo að lokum út í ískaldan sjóinn.

Agnieszka segir gaman að vera í hópnum og hvetur alla til að taka þátt. Þau byrji á skemmtilegri upphitun sem inniheldur meðal annars hláturjóga og sjá til þess að þau séu jákvæð fyrir því að fara í erfiðar aðstæður og sjóinn sem er mjög kaldur þessa dagana. 

Hjálpi fólki að takast betur á við lífið

Agnieszka segir að tilgangurinn með þessum samkomum í Nauthólsvík sé skýr. 

„Að bæta heilsu sérstaklega. Að vera saman í svona erfiðu ástandi það líka hjálpar í venjulegu lífi þegar við komum í erfitt ástand eins og stress. Það gerir það betra. Líka ef fólk á erfitt með kulda þá þjálfar það öll kerfin í líkamanum.“

Fréttamaður og myndatökumaður Stöðvar 2 mættu í Nauthólsvík í gærkvöldi og skrásettu hvað fer þar fram á dimmu janúarkvöldi. 

Hin tíu ára Laura hefur reglulega tekið þátt með hópnum og lætur lágt hitastig ekki stöðva sig. Agnieszka segir að fleiri úr bekknum hennar hafi komið en Laura hafi verið duglegust að mæta aftur og demba sér í kaldan sjóinn, enda ekki fyrir alla.

Agnieszka ítrekar að allir séu velkomnir að mæta í kuldaþjálfunina í Nauthólsvík á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 18.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×