Inga Sæland formaður Flokks fólksins vakti athygli í áramótagrein í Morgunblaðinu að fundarherbergið Arnarfell á fimmtu hæð í nýrri skrifstofubyggingu Alþingis leiki á reiðiskjálfi með reglulegu millibili. Hún bendir þar á að titringurinn hafi valdið töluverðum áhyggjum þegar Volodimír Selenskí Úkraínuforseti heimsótti Ísland og fundaði með utanríkismálanefnd þingsins í sama fundarherbergi.
Inga segir mikilvægt að bregðast við.
„Á fimmtán mínútna fresti keyrir strætó yfir hraðahindrun og þá verður jarðskjálfti upp á tvo komma fimm á Richter í fundarherberginu. Þetta gerist oftar ef aðrir stórir bílar keyra líka þar yfir. Þetta á ekki að vera svona. Ég hef aldrei upplifað annað eins,“ segir Inga.

Sökudólgurinn í Vonarstræti
Hraðahindrunin sem um ræðir liggur á Vonarstræti milli Ráðhúss Reykjavíkur og Smiðjunnar. Þegar stór ökutæki keyra yfir hana virðist það valda titringi í burðarvirki Smiðjunnar í fundarherberginu Arnarfelli eins og áður hefur verið lýst. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu frá Framkvæmdasýslu ríkisins er verið að kanna möguleika á að fjarlægja hraðahindrunin í samráði við borgina.

Erfitt að tala saman í matsalnum
Inga er ekki alveg nóg sátt við húsnæðið sem var að fullu tekið í gagnið á fyrrihluta síðasta árs. Þar eru nefndaherbergi Alþingis, skrifstofur þingmanna og starfsmanna og mötuneyti. Hönnunin hússins hefur verið sögð margbrotin þar sem hugsað hafi verið út í minnstu smáatriði.
„ Ég tel að þetta sé galli í húsnæðinu eins og svo margt annað þarna. Það er til að mynda ill mögulegt að tala saman í matsalnum í húsinu. Það er ýmislegt sem hefði mátt betur fara,“ segir Inga.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem nýtt skrifstofuhús Alþingis kemst í fréttirnar. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er ósáttur með húsnæðið en hann fór í skoðunarferð með fréttamanni um húsnæðið á síðasta ári: