Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur
1 2 3 … 3 ›
Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra sem beitti sér gegn því að Alþingi samþykkti bókun 35 við EES samninginn ætlar að styðja bókunina þegar hún verður lögð fram af núverandi ríkisstjórn. Dómsmálaráðherra segir það ástand sem nú ríki hjá embætti ríkissaksóknara ekki geta varað lengi. Innlent 23.12.2024 19:41
Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Forsætisráðherra segir að ekki verði mikið hróflað við fjárlögum næsta árs enda forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar að ná niður verðbólgu og vöxtum. Fjármunir verði þó tryggðir til að bæta meðferðarúrræði og ekki væri hægt að búa við þá kjaragliðnun sem átt hafi sér stað milli bóta almannatrygginga og lægstu launa í landinu. Innlent 23.12.2024 19:22
Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Skoðanir fyrrum ráðherra Sjálfstæðisflokksins á nýjum ríkisstjórnarsáttmála virðast mjög ólíkar. Guðrún Hafsteinsdóttir segir nýja sáttmálann keimlíkann sáttmála fráfarandi ríkisstjórnar á meðan Bjarni Benediktsson segir málefnin hafa fuðrað upp í loft. Innlent 23.12.2024 16:10
Hvalveiðilögin barn síns tíma Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, segir hvalveiðilögin barn síns tíma. Hún geri sér grein fyrir því að hvalveiðar séu mikið hitamál. Innlent 23.12.2024 14:51
Hyggst greiða atkvæði með bókun 35 Eyjólfur Ármannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, segist munu greiða atkvæði með frumvarpi ríkisstjórnar um samþykkt bókunar 35 þegar til þess kemur. Innlent 23.12.2024 14:39
Sigurður Ingi segir áberandi glufur í sáttmálanum Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins var í stuttu viðtali eftir að starfsstjórn Bjarna Benediktssonar skilaði inn lyklunum og stjórn Kristrúnar Frostadóttir tók við á Bessastöðum. Innlent 23.12.2024 14:07
Endurskoða lög um hvalveiðar á kjörtímabilinu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir á fyrsta fundi nýrrar ríkisstjórnar hafi ráðherrar farið yfir stefnuyfirlýsingu sína og skipulagt hvernig þau hefja og skipuleggja störf sín í ráðuneytunum. Þau hafi þurft að ræða heilmikið til ríkisstjórnin geti stillt saman strengi sína. Innlent 23.12.2024 13:11
Bagalegt að Sigríður og Helgi Magnús geti ekki unnið saman Nýr dómsmálaráðherra segir ljóst að sú staða sem uppi er hjá embætti ríkissaksóknara vegna Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara geti ekki staðið í langan tíma. Ráðherra segist átta sig á að það sé á ábyrgð hans að liðka þarna til. Innlent 23.12.2024 13:06
Inga tók jólalag á fyrsta fundi Fyrsti ríkisstjórnarfundur ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur var haldinn nú í morgun. Glatt var á hjalla og Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og nýr félags- og húsnæðismálaráðherra, var kát og brast hún í söng. Innlent 23.12.2024 11:12
Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Ásthildur Lóa Þórsdóttir, mennta- og barnamálaráðherra, og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra segjast spenntar takast á við verkefnum nýrrar ráðuneyta. Áherslumál þeirra eru til dæmis að efla læsi, íslenskukennslu fyrir innflytjendur og löggæslu. Þær segja það hafa verið rætt sérstaklega í ríkisstjórn að efla samvinnu og finna sameiginlega snertifleti. Innlent 23.12.2024 09:02
Ný ríkisstjórn fundar í dag Ný ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur mun í dag eiga sinn fyrsta formlega fund sem ríkisstjórn. Fundurinn hefst klukkan 9.30 og verður á Hverfisgötu þar sem ríkisstjórnin hefur átt sína reglulegu fundi síðustu vikur. Innlent 23.12.2024 07:39
Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Ellefu ráðherrar tóku við lyklum að ráðuneytum sínum í dag. Það var gert ýmist með handaböndum eða faðmlögum. Í dag tók daginn að lengja á nýjan leik sem segja má að sé merki um nýtt upphaf þegar ráðherrar tóku við lyklum. Innlent 23.12.2024 00:30
Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Skrif ritstjóra Smartlands á mbl.is um klæðaburð Ingu Sæland, formanns Flokks fólksins, á Bessastöðum í gær hafa vakið mikla athygli og umtal meðal netverja. Ljóst er að ekki eru allir hrifnir af skrifum Smartlands sem sumir segja ósmekkleg, lágkúruleg og jafnvel gefið í skyn að þau beri vott um kvenfyrirlitningu. Smartland Mörtu Maríu veigrar sér ekki við að fjalla með fjölbreyttum, og jafnvel gagnrýnum hætti, um tísku og klæðaburð ráðamanna og annarra þjóðþekktra einstaklinga svo athygli hefur vakið. Lífið 22.12.2024 23:31
Tvö tröllvaxin mál og sækja eigi tekjurnar í fiskinn Það kemur á óvart að stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar sé ekki meira afgerandi um aðgerðir í velferðarmálum miðað við þær áherslur sem flokkarnir héldu á lofti fyrir kosningar. Tvö risavaxin mál er hins vegar að finna í sáttmálanum, annars vegar um auðlindir og hins vegar um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Innlent 22.12.2024 21:47
„Heimsins furðulegasti fiskur“ afhentur í fjármálaráðuneytinu „Ég mun verða með aðhald í þinginu,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson um leið og hann færði nýjum fjármála- og efnahagsráðherra lyklavöld og blómvönd í ráðuneytinu í dag. Daði Már Kristófersson færði Sigurði Inga hins vegar lesefni, Álabókina eftir Patrik Svensson, sem er saga um „heimsins furðulegasta fisk,“ líkt og segir á kápu bókarinnar. „Ég vona að þú hafir jafn gaman að henni og ég hafði,“ sagði Daði. Innlent 22.12.2024 20:48
Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra og formaður Flokks fólksins, segir fyrirhugaðar breytingar á lögum og reglum um strandveiðar fela í sér margt annað en að auka kvóta. Hún átti í snörpum orðaskiptum við þáttarstjórnanda á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun varðandi áform ríkisstjórnarinnar í strandveiðum. Forsætisráðherra viðurkennir að margt sé ekki að fullu útfært í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og gefur ekki upp hversu mikil boðuð hækkun auðlindagjalda eigi að vera. Innlent 22.12.2024 19:08
„Þannig að jólin komu snemma hjá mér“ Ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar fengu lyklana að ráðuneytum sínum afhenta í dag frá forverum sínum. Mikið var um blendnar tilfinningar og velfarnaðaróskir. Jólin komu snemma hjá Þorbjörgu Sigríði dómsmálaráðherra, Hanna Katrín finnur fyrir mikilli ábyrgð og Ásthildur Lóa ætlar að kenna börnum að lesa. Innlent 22.12.2024 17:00
Fyrsti læknirinn í heilbrigðisráðuneytinu Alma D. Möller fyrrverandi landlæknir tók við lyklunum að heilbrigðisráðuneytinu í dag frá Ástu Valdimarsdóttur ráðuneytisstjóra. Hún segir tilfinninguna að taka við ráðuneytinu ótrúlega og hlakkar til að læra og takast á við nýja hluti. Hún er fyrsti læknirinn sem verður heilbrigðisráðherra. Innlent 22.12.2024 15:09
„Þú veist að ég er sú sem að passar best hérna inn“ Eftir að hafa afhent Kristrúnu Frostadóttur lyklana að Stjórnarráðinu fyrr í dag afhenti Bjarni Benediktsson einnig Ingu Sæland lyklana að félags- og húsnæðismálaráðuneytinu. Hann hefur stýrt því frá því Guðmundur Ingi Guðbrandsson hætti fyrr á árinu. Innlent 22.12.2024 14:43
„Ein allra besta jólagjöfin“ Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, afhenti í dag Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, nýjum utanríkisráðherra, lyklana að ráðuneytinu. Vel fór á með þeim og gaf Þórdís Þorgerði einnig ljóð eftir Árna Grétar Finnsson, sem Þorgerður sagði eina þá allra bestu jólagjöf sem hún hafi fengið. Innlent 22.12.2024 14:07
„Ég veit að þér mun sömuleiðis líða vel hér“ Bjarni Benediktsson, fyrrverandi forsætisráðherra, afhenti Kristrúnu Frostadóttur, nýjum forsætisráðherra, lyklana að Stjórnarráðinu í dag. Við afhendingu lyklanna sagðist Bjarni vona að Kristrún næði góðum árangri í störfum sínum. Innlent 22.12.2024 13:22
Tímamót Þann 9. maí árið 2022 var Evrópuhreyfingin stofnuð og tók þá yfir eldri félög: Já Ísland og Evrópusamtökin. Skoðun 22.12.2024 08:02
Þakklæti, auðmýkt, rok og söngur ríkisstjórnarinnar Það voru upp til hópa auðmjúkir og þakklátir ráðherrar sem formlega tóku sæti í ríkisstjórn á Bessastöðum á vetrarsólstöðum, þremur dögum fyrir jól. Þannig lýsa ráðherrarnir tilfinningunni sjálfir. Tíu af ellefu ráðherrum ríkisstjórnarinnar hafa aldrei setið í ríkisstjórn áður og í fyrsta sinn í lýðveldissögunni eru konur í meirihluta í ríkisstjórn. Kristrún Frostadóttir er jafnframt sú yngsta í sögunni til að gegna embætti forsætisráðherra. Innlent 22.12.2024 00:24
„Kurr í greininni í dag um að þetta skuli hvort tveggja vera á matseðlinum“ Ákveðnar áhyggjur og kurr ríkir innan ferðaþjónustunnar eftir daginn í dag þegar ný ríkisstjórn sýndi á spilin og kynnti stefnuyfirlýsingu sína. Meðal annars stendur til að leggja á auðlinda- og komugjöld á greinina sem veldur nokkrum áhyggjum innan greinarinnar að sögn framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Hann fagnar því þó að ekki standi til að hækka virðisaukaskatt á greinina og hlakkar til samstarfs með nýjum ráðherra. Innlent 21.12.2024 22:43
Breytingar á ráðuneytum taka ekki gildi fyrr en í mars Lyklaskipti fara fram í ráðuneytum síðdegis á morgun þegar ráðherrar í ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins taka við lyklavöldum, einn af öðrum, úr hendi fráfarandi ráðherra starfsstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Innlent 21.12.2024 20:07
Ný ríkisstjórn Íslands: „Við erum orðnar vinkonur“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og Inga Sæland, félagsmálaráðherra komu syngjandi út af ríkisráðsfundi á Bessastöðum sem lauk á sjötta tímanum í dag. Líkt og kunnugt er var ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins skipuð á fundi ríkisráðs Íslands á Bessastöðum í dag. Þess má geta að Kristrún verður yngsti forsætisráðherra Íslandssögunnar en í stjórninni eru konur einnig í miklum meirihluta en stjórnina skipa sjö konur og fjórir karlar. Innlent 21.12.2024 18:48
Krónan muni veikjast og allir halda að sér höndum Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fráfarandi menningar- og viðskiptaráðherra, segir að framdundan sé mikil óvissa á gjaldeyrismarkaði, nú þegar ný ríkisstjórn hefur boðað stóraukna gjaldtöku á stærstu atvinnugrein þjóðarinnar, ferðaþjónustuna. Innlent 21.12.2024 16:44
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB eigi síðar en 2027 Í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins stendur að þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu fari fram eigi síðar en árið 2027. Innlent 21.12.2024 15:53
„Mjög þunn súpa, lítið í henni“ Bjarni Benediktsson, fráfarandi forsætisráðherra, segir að stjórnarsáttmáli nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins hafi komið honum á óvart. „[Þetta er] mjög þunn súpa, lítið í henni. Maður spyr sig, hvað varð um öll stóru málin?“ Innlent 21.12.2024 15:26
Ætla að fjölga lögreglumönnum verulega Ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins ætlar að fjölga lögreglumönnum og það verulega. Þannig á að auka öryggi almennings, samkvæmt stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Innlent 21.12.2024 14:53