Innlent

Sex evrópskir utan­ríkis­ráð­herrar skora á Ísrael

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir/Vilhelm

Utanríkisráðherra Íslands og fimm annarra Evrópuríkja hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem kallað er eftir því að ísraelsk stjórnvöld hverfi frá áformum sínum um að víkka út hernaðaraðgerðir og hafa varanlega viðveru á Gasa. Ráðherrarnir hafna jafnframt „öllum hugmyndum um brottflutning Palestínumanna frá Gaza enda væru það brot á alþjóðalögum,“ segir meðal annars í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu um málið.

Undir yfirlýsinguna rita utanríkisráðherrar Írlands, Lúxemborgar, Noregs, Slóveníu og Spánar, auk Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra Íslands. Í yfirlýsingunni kalla ráðherrarnir einnig eftir nýju vopnahléi á Gasa og lausn allra gísla auk þess sem þess er krafist að Ísraelar hleypi matar- og neyðaraðstoð þegar í stað inn á Gasa.

Áform Ísraelsstjórnar sem greint var frá í vikunni um nýjar og harðari aðgerðir á Gasa, aukna viðveru og stórfellda fólksflutninga hafa vakið þónokkur viðbrögð. Í yfirlýsingu utanríkisráðherranna sex segir að áformin væru „enn eitt skrefið yfir línuna,“ og myndi „marka nýja hættulega stigmögnun og ógna hverjum möguleika á tveggja ríkja lausn.“

„Frekari hernaðarleg stigmögnun á Gasa mun aðeins auka á þegar hörmulegt ástand fyrir óbreytta borgara í Palestínu og ógna lífum þeirra gísla sem enn eru í haldi,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni sem birt hefur verið í held sinni á ensku á vef utnaríkisráðuneytisins.

Ráðherrarnir gagnrýna hvernig Ísraelar hafi undanfarna mánuði komið í veg fyrir að neyðaraðstoð og matarbirgðir komist inn á svæðið og kalla eftir því að þessu verði hætt strax og aðstoð hleypt inn á svæðið í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar og mannúðarsamtök.

Yfirlýsinguna í heild sinni má sjá hér, en undir hana rita auk Þorgerðar þau, Simon Harris, utanríkisráðherra Írlands, Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, Tanja Fajon, ráðherra utanríkis- og Evrópumála Slóveníu, José Manuel Albares Bueno, utanríkis- og Evrópusambandsráðherra Spánar og Xavier Bettel, varaforsætisráðherra og utanríkisráðherra Lúxemborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×