Innlent

Holtavörðuheiðin opin á ný

Atli Ísleifsson skrifar
Veginum var lokað í nótt vegna mikilla vatnavaxta.
Veginum var lokað í nótt vegna mikilla vatnavaxta. Landsbjörg

  Búið er að opna veginn um Holtavörðuheiði á nýjan leik.

Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. 

Veginum var lokað í nótt vegna mikils vatnsaga sem var á veginum auk þess sem nokkur umferðaróhöpp urðu á leiðinni. 

Þannig voru björgunarsveitir í Borgarbyggð kallaðar út vegna ferðafólks sem hafði ekið út af veginum. Bjarga þurfti tveimur sem voru fastir á þaki bílsins í vatni.  


Tengdar fréttir

Holtavörðuheiði lokað í nótt

Veginum um Holtavörðuheiði var lokað í nótt vegna mikils vatnsaga sem var á veginum auk þess sem nokkur umferðaróhöpp urðu á leiðinni, að því er fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×