Stórir og umfangsmiklir tölvuleikirnir höfðu lengi flestir kostað sextíu dali en þær hækkuðu upp úr 2020 í sjötíu dali. Á sama tíma hefur kostnaður við gerð tölvuleikja aukist til muna.
Grand Theft Auto 5 var þegar hann kom út árið 2013 dýrasti leikur sögunnar en talið er að framleiðslan hafi kostað 265 milljónir dala.
Sjá einnig: Enn ein útgáfan og sú besta, aftur
Hann varð þó fljótt einhver vinsælasti tölvuleikur heimsins og náði árið 2018 þeim áfanga að verða arðbærasta skemmtanaafurð sögunnar. Þá höfðu Rockstar og Take Two þénað um sex milljarða dala af honum.
Búist er við því að GTA 6 muni slá gamla met GTA 5 í framleiðslukostnaði og það töluvert, þó lítið af upplýsingum um kostnað hafi litið dagsins ljós enn sem komið er.
Matthew Ball, greinandi sem gaf nýverið út skýrslu um stöðu leikjaiðnaðarins og væntingar til ársins 2025, segir að ef GTA 6 muni kosta sjötíu dali, verði það ódýrasti leikurinn í seríunni, með tilliti til verðbólgu. Eigi verðþróunin að halda í við verðbólgu ætti verðið að vera um 91 dalur.
Hann segir að leikjaframleiðendur vonist til þess að GTA 6 muni kosta í það minnsta áttatíu dali og jafnvel hundrað. Það myndi gera öðrum kleift að hækka verðið heilt yfir. Sjötíu dala leikir myndu kosta áttatíu og sextíu dala leikir færu upp í sjötíu, til dæmis.
Michael Douse , útgáfustjóri Larian, sem gáfu út hinn vinsæla leik Baldur‘s Gate 3, tjáði sig um skýrsluna á sunnudaginn. Þar sagði hann Ball vera að segja upphátt það sem talað hefði verið um innan geirans.
Douse sagði leikjaverð ekki hafa hækkað með verðbólgu. Tók hann einnig fram að það væri ekki stærsta ástæða þess að leikjaiðnaðurinn væri „í skítnum“ þessa dagana en það væri þrátt fyrir það óþægilegur sannleikur.
A good company raises salaries in line with inflation so that their staff don’t die or something, but games prices haven’t risen with inflation. This isn’t the reason the industry is in the shit for now, but it is an uncomfortable truth. On the other hand, the responsibility for…
— Very AFK (@Cromwelp) January 19, 2025
GTA 6 á að óbreyttu að koma út í haust en útgáfudagur hans hefur ekki verið staðfestur.